Seðlabanki Íslands.
Forseti. Ég held að þetta sé einmitt mjög góð samlíking, áskrifandi að svo rosalega mörgu sem ég get ekki sagt upp. Það er búið að búa til rosalega mikið af einmitt þessari nauðsynlegu þjónustu hingað og þangað. Meira að segja þjónustan sem maður gengst inn á, þetta er eitthvað sem maður þarf, og áttar sig síðan á að er bölvað rugl — vesenið við að afskrá sig er yfirleitt grafið ofan í skúffu, niðri í kjallara, í læstu herbergi, í læstri skúffu o.s.frv., einhver Hitchhiker´s Guide to the Galaxy geðveiki. Ég skráði mig úr einhverri þjónustu fyrir nokkrum mánuðum og tók síðan eftir því, þegar ég var að fara yfir fjármálin: Bíddu, er ég enn að borga fyrir þetta? Ha, nei ég afskráði mig úr þessu. Ég skoðaði gögnin og já, ég var með tölvupóst þar sem stóð: Ég afskrái mig úr þessu. Þannig átti ferlið að vera en það gerðist bara ekki neitt. Þeir tóku sem betur fer vel í erindi mitt og bakfærðu og allt í lagi. Það er einhvern veginn verið að stóla á að fólk gleymi. Þetta eru þessar ósýnilegu greiðslur, þessir aurar. Kvikmyndin The Office fjallaði einmitt um þetta á svo skemmtilegan hátt, milljón millifærslur voru gerðar og það var verið að rúnna tölur af og í tölvukerfinu var verið að hirða brotabrot af aurum, og enginn myndi taka eftir því. En allt í einu söfnuðust aurarnir upp í að verða einhverjar dágóðar milljónir. Þá runnu tvær grímur á fólk. Það hlýtur einhver að taka eftir þessu, en það tók enginn eftir því. Mér finnst þetta mjög áhugavert og mér finnst einhvern veginn eins og við séum að glíma við það sama með þetta.