154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[23:24]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir hans fínu ræðu, innblásnu ræðu, sem kom með, verð ég að segja, svolítið annað sjónarhorn og fékk mig líka til að hugsa um þá vinkla sem hann dró fram hér. Ég ætla þó ekki að leyna því að það er tvennt sem ég hef hugsað mikið í tengslum við þetta, og hef komið inn á í andsvörum í þessu máli, og það eru í fyrsta lagi þjóðaröryggissjónarmiðin. Ég veit að hv. þingmaður hefur kynnt sér þau mjög vel. Telur hann að með þessu frumvarpi getum við með sanni sagt að verið sé að stíga skref í átt að auknu þjóðaröryggi, út frá netöryggi t.d.? Aðstoðarframkvæmdastjóri NATO var í heimsókn hjá okkur á dögunum og fór einmitt, með ýmsum aðilum hér, yfir mikilvægi netógna, netöryggis, vegna þeirrar skipulögðu brotastarfsemi sem er ógn við þjóðaröryggi og þeirrar starfsemi sem við vitum alveg að er í gangi, m.a. af hálfu Rússa og af hálfu Kínverja, svo að það sé bara sagt tæpitungulaust hér. Telur hann að þetta geti tryggt það að við verðum í aðeins meira vari? Það verður satt best að segja ekki sagt að við séum í einhverju vari eins og staðan er núna. Hin spurning mín tengist samkeppni á bankamarkaði, hvort hann telji að í því kerfi sem við búum við sé hægt að byggja upp raunhæfa samkeppni á banka- og tryggingamarkaði, með það gjaldmiðilsfyrirkomulag sem við Íslendingar búum við.