Seðlabanki Íslands.
Forseti. Þetta eru kjarnaspurningar í þessu máli. Já, og sérstaklega með þeim hluta breytingartillagna sem komu frá meiri hlutanum um að bæta netöryggi inn í þær reglur sem Seðlabankinn getur sett þarna. Vandinn við það er kannski að það er mjög óaðgengilegt fyrir okkur að sjá hvað verður gert. Þarna eru heimildir fyrir Seðlabankann til að setja reglur um fyrirkomulag innviða innlendrar greiðslumiðlunar, eins og það er orðað í frumvarpinu. Þetta er rosalega viðamikið. Ég get ekki spáð fyrir um það hversu mikið Seðlabankinn getur gert með þeirri heimild sem þessi fjögur orð veita honum. Það er kannski áhugavert fyrir okkur að pæla í því. Hversu mikið vald afhendum við þá Seðlabankanum með þessu afsali, með því að setja reglur en ekki tiltaka skilyrði í lögum um það til hvaða viðmiða eigi að horfa við setningu þeirra reglna? Þetta er pínu óljóst en kannski þarf að rökstyðja það á einhvern hátt út frá þjóðaröryggi á öðrum vettvangi, það má kannski orða það þannig. Gjaldmiðillinn er risastórt mál, talandi um þessa blessuðu krónu okkar. Við Píratar erum með stefnu um að hægt sé að leyfa meiri notkun hliðargjaldmiðla þannig að ef einhverjir ætla að fara í eitthvert brask geti þeir gert það í öðrum gjaldmiðlum, að þeir láti gjaldmiðilinn, sem heimilin og smærri fyrirtækin eru að nota til að hafa ofan í sig og á og til að stunda venjuleg viðskipti, bara vera þannig að áhættan af braskinu lendi annars staðar.