154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[23:29]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Braskið — það er akkúrat stóra spurningin sem kemur upp. Hverjir verða þá fórnarlömb brasksins sem er með íslensku krónuna? Það er á endanum alltaf sama fólkið sem ber byrðarnar af kostnaðinum vegna íslensku krónunnar. Það eru heimilin í landinu. Það eru millitekjuhóparnir í landinu. Það er launafólk og smærri fyrirtæki sem hafa ekki heimild til þess að gera upp í erlendum gjaldmiðli, eru ekki í skjólinu sem útflutningsfyrirtækin eru eðlilega, af því að við viljum að útflutningsfyrirtækin séu samkeppnishæf. Við viljum samkeppnishæf lífskjör hérna. Við viljum að fyrirtækjunum okkar gangi vel. Þess vegna verða þau að keppa á sama sviði og önnur fyrirtæki, útlend, sem þau eru í samkeppni við. Braskið, þyngslin af íslensku krónunni, lendir alltaf á sama fólkinu, sama hópnum. Ein birtingarmynd þess sem ég er að reyna að segja og við í Viðreisn erum að reyna að draga fram — ég heyri fólk oft tala á innsoginu um það hve allt sé dýrt í bankakerfinu. Það er ástæða fyrir því. Við förum aldrei í kjarnann. Ástæðan er íslenska krónan. Það alltaf settur hlemmur á alla umræðu af því að það eru ákveðnir hagsmunaaðilar sem vilja ekki að einu eða neinu sé breytt hér heima, að það verði raunveruleg samkeppni fyrir fólkið í landinu, fyrir heimilin í landinu, fyrir launafólk. Þess vegna er svona mál, sem er að mörgu leyti ágætt — þegar ég hlusta á hv. þingmann, af því að ég er í utanríkismálanefnd, finnst mér augljóst hér á milli 2. og 3. umræðu að við í utanríkismálanefnd fáum málið líka aðeins til umfjöllunar og sjáum hverju þessar breytingar munu skila. (Forseti hringir.) Málið sjálft, hugsunin, markmiðið, er gott, en það snertir alltaf á einn eða annan hátt á því sem er mesta meinsemdin fyrir (Forseti hringir.) íslenskt samfélag og það er þessi úrelti gjaldmiðill sem veitir fólki á Íslandi ekki jöfn tækifæri. Það er ekki jafnt gefið meðan við erum með íslensku krónuna.