154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[23:31]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Þegar allt kemur til alls er íslenska krónan ákveðin efnahagsleg og hagstjórnarleg leti. Það er svo auðvelt að slá hana bara upp eða niður, fram eða til baka, til að það henti ákveðnum hagsmunaaðilum. Áður fyrr var það útgerðin, það þurfti bara að hnika genginu til þannig að það hentaði henni, þannig að hún myndi ekki koma út í mínus og þess háttar. Það var verið að bjarga ákveðnum aðilum. Íslenska krónan er að miklu leyti til hönnuð sem stöðugleikatæki fyrir ákveðna aðila og þá kannski braskarana sem við töluðum um hér áðan.

Píratar eru á svipuðum nótum og Viðreisn varðandi gjaldmiðilinn þó að við séum kannski að orða það þannig að fyrsta skrefið væri meiri fastbinding á genginu á svipaðan hátt og Danmörk gerir; að það væri fyrsta skrefið, hvort sem það væri í átt að evru eða evru plús dollara eða einhverri myntkörfu, þó að það sé rosalega gildishlaðið orð vegna hrunsins. En krónan sveiflast í takt við viðskiptagjaldmiðla okkar, sem er aðallega evran en líka dollarinn. En ef við myndum setja fastgengisstefnu, svipað og Danir gera, væri það efnahagslegi stöðugleikinn sem við gætum miðað við. Í augnablikinu getum við ekki treyst á krónuna, að hún haldi verðgildi sínu. Þó að það hafi verið tiltölulega vel í lagt á undanförnum árum að viðhalda genginu á ákveðinn hátt þá er það samt ekki nægilega öruggt. Það vantar betri grundvöll fyrir það (Forseti hringir.) til þess einmitt að við getum haft þennan stöðugleika sem íslensk heimili þurfa á að halda þegar allt kemur til alls (Forseti hringir.) svo að við getum unnið bug á þessum gríðarlegu vöxtum sem krónan leggur ofan á allt.