Seðlabanki Íslands.
Virðulegi forseti. Nú langar mig til að spyrja hv. þingmann aðeins út í nýsköpunartækifærin á sviði greiðslumiðlunar. Hvar telur hv. þingmaður að sóknarfærin séu hvað varðar nýsköpun á sviði greiðslumiðlunar? Getum við átt von á því að með nýsköpun á þessum vettvangi geti almenningur vonandi á endanum losnað undan vaxta- og gjaldaokri íslensku bankanna? Það væri nú aldeilis gaman. Nú hefur t.d. mikið verið rætt um þann möguleika til tækniþróunar með því að nýta bálkakeðjutækni eða, eins og það var kallað, dreifða færsluskrártækni. Getum við átt von á því að hægt verði að nýta krafta bálkakeðjunnar til að auðvelda líf almennings með bættri greiðsluþjónustu? Það væri áhugavert að fá skoðun hv. þingmanns á þessu máli. Ég veit að undanfarið hafa sprottið upp mörg áhugaverð sprotafyrirtæki og nýsköpunarfyrirtæki á vettvangi fjártækni og meira að segja einn sparisjóður, Indó. Hann náði nánast á einni nóttu að stórbæta kjör íslenskra neytenda á bankamarkaði og mér dettur í hug að víða séu tækifæri til úrbóta í þágu neytenda á þessu sviði. Hvað hefur hv. þingmaður um þetta að segja?