Seðlabanki Íslands.
Forseti. Rafmyntir, sem eru viðbót ofan á blokkarkeðjuna eða bálkakeðjuna, þessa dreifðu færsluskrártækni, eru tilraun til þess einmitt að komast fram hjá millifærslukerfinu, sem hefur verið hérna alþjóðlega, og flytja fjármagn á milli landa og heimshluta og þess háttar á skilvirkari hátt heldur en hefur verið. Ég held að að öðru leyti ætti fólk ekki að snerta rafmynt með löngu priki, en hún er fín til að vera ákveðinn milliliður. Þeir sem vilja taka áhættu og giska á eitthvert flökt á verðmæti slíkra rafmynta taka bara þá áhættu. Það er fínt, þá er það fyrir utan krónuhagkerfið og allt annað, frábært, þá bara flöktir það eins og það gerir. En þetta er áhættufjárfesting eins og hún gerist verst þegar allt kemur til alls en mjög góð fyrir svona millifærslur..
Eitt dæmi: Þegar ég flutti til baka frá Bandaríkjunum þá vorum við með launareikning erlendis og þegar við komum til Íslands þá bættust við síðustu greiðslurnar sem við fengum úti í Bandaríkjunum og vildum flytja þær til Íslands. Við vorum með debetkort fyrir bankareikningnum erlendis og við stungum kortinu bara í hraðbankann og ætlum að taka út peninginn. Ég man ekki upphæðina sem við þurftum að borga fyrir þessa millifærslu en hún var stjarnfræðileg. Og af því að við vorum ekki búin að setja upp SWIFT-greiðslur fyrir greiðslur erlendis frá til Íslands þá var það ekki hægt heldur. Ódýrasta leiðin þegar allt kom til alls reyndist vera sú að skrifa ávísun. Taka upp tékkheftið, skrifa ávísun, rétta hana bankanum okkar hérna sem sendi hana til viðskiptabanka síns í Bandaríkjunum sem sendi hana til bankans okkar í Bandaríkjunum og þetta fór síðan eftir þeirri keðjuleið til baka. Þetta var ódýrasta leiðin, þetta var ódýrara heldur en að nota debetkort í hraðbankanum (Forseti hringir.) og taka peninginn beint út. Við erum í stjarnfræðilega miklu rugli með rafræna greiðslumiðlun í heiminum í dag.