154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

Seðlabanki Íslands.

662. mál
[23:38]
Horfa

Tómas A. Tómasson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir góða ræðu og góðar vangaveltur. Og talandi um bitcoin þá var það þannig að sonarsonur minn fann eitthvert bitcoin-fyrirtæki og var að grafa og grafa og svo sagði hann mér: Ég er búinn að græða milljón. Ég sagði við hann: Ókei, taktu helminginn út og láttu hitt bara rúlla áfram. Nei, nei, ég ætla að fara upp í tíu. Svo tveim vikum seinna: Ég er búinn að tapa öllu. Svona er þetta.

En ég ætla að spyrja hv. þingmann út í einn þátt þessa máls. Það er þessi óútskýrða breytingartillaga meiri hlutans sem fellir út heimild Seðlabankans til þess að reglusetja hámark gjaldtöku vegna greiðsluþjónustu. Þarna er verið að fella út tvo hluti, annars vegar gjaldtökuheimild Seðlabankans en hins vegar vald Seðlabankans til að kveða á um hámark gjaldtöku vegna greiðsluþjónustu. Nefndin útskýrir aðeins hvers vegna eigi að fella brott fyrri hlutann eða gjaldtökuheimild Seðlabankans en útskýrir ekki hvers vegna seinni hlutinn er felldur brott. Hvernig getur svona lagað átt sér stað á hinu háa Alþingi árið 2024? Eru þessi vinnubrögð ekki eitthvað undarleg eða er þetta einfaldlega til marks um það að mistök hafi átt sér stað? Ég bara spyr enn og aftur:.