Seðlabanki Íslands.
Forseti. Við getum kannski orðað það þannig að mistök eru að eiga sér stað, eru ekki orðin enn þá, við erum ekki enn þá búin að klára þetta. En ég held að þetta sé merki um það að meiri hlutinn sé einmitt að reyna að drífa sig út með öll málin sem þau eru búin að vera með föst inni í nefnd og fyrir vikið fáum við ekki nægjanlega gott nefndarálit sem útskýrir af hverju það er verið að taka burt mörkin á þeim gjöldum sem hægt er að taka fyrir greiðsluþjónustu. Það eru þarna þrjár breytingar, að bæta við netöryggi er mjög skiljanleg breyting. Það má segja sem svo að það útskýri sig sjálft með allri greinargerðinni sem fylgir frumvarpinu, af því að það er svo mikið þjóðaröryggissjónarhorn í frumvarpinu. Tilkoma þessa frumvarps er til þess að mæta ábendingum þjóðaröryggisráðs um greiðslumiðlun á landinu þannig að þetta er mjög eðlilegt, það hefur bara gleymst hreinlega að setja netöryggi þarna inn, það var talað um það í frumvarpinu og þess háttar, í greinargerðinni. Það er líka mjög eðlilegt að taka burt gjaldtökuna vegna notkunar á innviðum greiðslumiðlunar af því að það er í öðrum lögum. Það er bara mjög skiljanlegt, mjög vel útskýrt. Þetta er nú þegar til staðar og þarf ekki setja inn aftur. Það er ekkert um það að segja. En svo kemur þessi síðasta breyting, bara til þess að hið opinbera eða Seðlabankinn sé ekki að skipta sér af út af samkeppnissjónarmiðum. Það þarf að rökstyðja það betur. Það þarf að útskýra það betur. Hvernig væri það mögulega inngrip á samkeppnismarkað ef Seðlabankinn gæti sett einhver mörk? Ef við myndum skilja það þá myndum við kannski geta sett skilyrði um það að (Forseti hringir.) Seðlabankinn geti ekki sett þess háttar mörk — en ekki bara engin mörk.