154. löggjafarþing — 121. fundur,  12. júní 2024.

Almennar stjórnmálaumræður.

[19:40]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Tekið er fyrir eina dagskrármálið, almennar stjórnmálaumræður, sem er útvarpað og sjónvarpað héðan úr Alþingishúsinu. Umræðurnar skiptast í tvær umferðir og hefur hver þingflokkur átta mínútur í fyrri umferð og fimm mínútur í seinni umferð.

Röð flokkanna verður þessi í báðum umferðum: Samfylkingin, Flokkur fólksins, Sjálfstæðisflokkur, Píratar, Framsóknarflokkur, Viðreisn, Vinstrihreyfingin – grænt framboð og Miðflokkurinn. Ræðumenn flokkanna verða:

Fyrir Samfylkinguna tala í fyrri umferð Kristrún Frostadóttir, 3. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, og í þeirri seinni Dagbjört Hákonardóttir, 11. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður.

Ræðumenn Flokks fólksins eru Inga Sæland, 7. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í fyrri umferð og Guðmundur Ingi Kristinsson, 9. þm. Suðvesturkjördæmis, í seinni umferð.

Fyrir Sjálfstæðisflokkinn tala Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra, í fyrri umferð og Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, í seinni umferð.

Ræðumenn Pírata eru í fyrri umferð Gísli Rafn Ólafsson, 13. þm. Suðvesturkjördæmis, og í seinni umferð Lenya Rún Taha Karim, 3. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður.

Fyrir Framsóknarflokkinn tala Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, 3. þm. Norðvesturkjördæmis, í fyrri umferð og Ágúst Bjarni Garðarsson, 11. þm. Suðvesturkjördæmis, í þeirri seinni.

Ræðumenn Viðreisnar eru Sigmar Guðmundsson, 12. þm. Suðvesturkjördæmis, í fyrri umferð og í þeirri seinni Guðbrandur Einarsson, 10. þm. Suðurkjördæmis.

Fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð tala Steinunn Þóra Árnadóttir, 2. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrri umferð og Eva Dögg Davíðsdóttir, 7. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í seinni umferð.

Fyrir Miðflokkinn tala Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 7. þm. Norðausturkjördæmis, í fyrri umferð og í þeirri seinni Bergþór Ólason, 8. þm. Norðvesturkjördæmis.