Almennar stjórnmálaumræður.
Forseti. Kæra landsfólk. Við erum stödd á sjöunda ári samsteypustjórnar afturhaldsafla. Nýjasta afurð glundroðabandalags íhaldsflokkanna er að gefa út hvalveiðileyfi í óþökk meiri hluta þjóðarinnar. Já, og gera Bjarna Benediktsson að forsætisráðherra, sömuleiðis í óþökk þjóðarinnar.
Þessi ríkisstjórn sérhagsmuna er komin fram yfir síðasta söludag. Sífellt færri styðja flokkana sem að henni standa og enn færri styðja ríkisstjórnina. Það eru allir komnir með yfir sig nóg af krísu Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og VG. Um þau þarf ekki að hafa fleiri orð.
Kæra þjóð. Við erum á tímamótum og breytingar liggja í loftinu. Nýafstaðnar forsetakosningar eru forskrift að því sem koma skal. Ungt fólk flykktist á kjörstað og hafnaði áhrifaleysi og stöðnun. 1. júní réðust kosningarnar á atkvæðum ungra kjósenda. Kosningaþátttaka var 81% sem er stórkostlegur árangur.
Þegar ég hugsa til framtíðar Íslands sé ég fyrir mér samfélag þar sem hlustað er á raddir allra. Samfélag sem er þakklátt kröfuhörðum kjósendum og kann að meta framlag og lýðræðisþátttöku allra.
Ímyndum okkur aðeins hvernig þessi ræða mín myndi líta út árið 2031, með Pírata í ríkisstjórn í sjö ár þar á undan. Ríkisstjórn þar sem enginn stjórnarflokkur tekur að sér að lúffa ítrekað fyrir Sjálfstæðisflokknum. Ríkisstjórnarsamstarf flokka sem sameinast um uppbyggingu, raunverulegan efnahagslegan stöðugleika og jöfnuð. Árið 2031 er langt síðan kosningaaldur var lækkaður í 16 ár. Kjörsókn hefur haldist há síðan í forsetakosningunum 2024. Ungt fólk flykkist á kjörstað og raðar sér í áhrifastöður. Á ungt fólk er hlustað. Stjórnvöld eru löngu hætt að skreyta sig með hugtökum eins og „þverpólitískri sátt“ til þess að réttlæta að gera ekki neitt. Þjóðinni er bókstaflega hleypt að borðinu. Kjörklefinn er langt frá því að vera eini staðurinn til að taka þátt. Þjóðfundir, þjóðaratkvæðagreiðslur og raunverulegt samráð eru regla en ekki undantekning. Gagnsæi, friðhelgi einkalífs, mannréttindi, tjáningarfrelsi og samkennd lýsa menningu og verklagi stjórnvalda á borði en ekki bara í orði.
Búið er að banna hvalveiðar, enda ómannúðlegar, óarðbærar og óverjandi. Á Íslandi er sjálfbær ferðamannaiðnaður með áherslu á að vernda náttúru landsins. Ferðamannaiðnaður í sátt og tillitssemi við íbúa landsins, atvinnugrein sem stuðlar að efnahagslegri velferð næstu kynslóða með lágmörkun umhverfisáhrifa.
Í kjölfar allsherjaruppgjörs við mengandi iðnað hefur sjókvíaeldi verið bannað og náðum við þannig að forða íslenskri náttúru frá stórslysi. Mikil vinna hefur verið lögð í atvinnustefnu þar sem ekki er treyst á eitt eða tvö mengandi risafyrirtæki til að halda lífi í brothættum byggðum heldur hefur fólkið í landinu og metnaður þess orðið ofan á. Hugvit er nú forsenda þess að fjölbreytt og spennandi störf má finna um allt land.
Ný ríkisstjórn hófst strax handa eftir kosningar haustið 2024. Byrjað var á því augljósa. Auðlindarenta í sjávarútvegi var tekin af fámennum hópi kvótahafa og nýtt til góðra verka. Rentan af sameiginlegri auðlind þjóðarinnar fjármagnar ekki lengur aukinn ójöfnuð. Fjármálaráðherra dettur ekki annað í hug en að stjórn efnahagsmála sé á sínu borði. Þar með er komið á eðlilegri verkaskiptingu og hvorki Seðlabanki né vinnumarkaður er skilinn eftir einn í baráttunni við verðbólgu, ofurvexti og minnkandi kaupmátt. Persónuafsláttur var hækkaður og snúið var aftur til eðlilegra bankaskatta.
Markmiðið er einfalt: Kraftmikið, fjölbreytt og sjálfbært atvinnulíf um allt land sem borgar nægilega mikið til baka til samfélagsins til að tryggja hágæða menntun, gjaldfrjálsa heilbrigðisþjónustu, líka þegar kemur að tannlækningum og geðheilbrigði. Öllum verði tryggt öruggt húsnæði við hæfi eftir umfangsmikið uppbyggingarátak hins opinbera. Frjálslynt samfélag ábyrgra einstaklinga.
Kæra þjóð. Píratar eru ekki í stjórnmálum til að breyta einhverjum smáatriðum. Píratar vilja kerfislægar breytingar, ekki bara plástra og bútasaum. Breytingar geta verið erfiðar. Þær eru tímafrekar og kalla á mikla samvinnu. Einmitt þess vegna er mikilvægt að við trúum á framfarir og umbætur og sættum okkur ekki við stöðnuð og veikluleg stjórnmál íhaldsflokkanna.
Píratar ætla í ríkisstjórn til að tryggja breytingar sem efla atvinnulíf og umhverfis- og loftslagsvernd. Réttindi launafólks eru ofar á forgangslista Pírata en arðgreiðslur hinna auðugu. Við ætlum að einfalda regluverk atvinnulífsins, en tryggja á sama tíma öflugt eftirlit og virka neytendavernd. Styrking Samkeppniseftirlitsins verður okkar fyrsta verk. Flokkar sem nota hvert einasta tækifæri til að veikja Samkeppniseftirlitið eru að sjálfsögðu ekki markaðshyggjuflokkar. Arðrán heitir kapítalisminn án samkeppni.
Píratar auka gagnsæi því að völdum fylgir ábyrgð. Píratar tryggja öflugan stuðning til náms, fjölskylduvænt samfélag og fjölbreytt og grænt atvinnulíf.
Kæru áheyrendur. Við viljum öll gott líf, í góðu og grænu landi. Það er vel hægt því það er Píratabyltingin.