154. löggjafarþing — 121. fundur,  12. júní 2024.

Almennar stjórnmálaumræður.

[20:28]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg):

Forseti. Kæru landsmenn. Hvers vegna erum við hér á Alþingi? Hvað er það sem drífur okkur áfram í þessum sal, sem veldur því að við stöndum hér oft langt fram eftir nóttu í umræðu þegar langþráð sumarið er loksins farið að láta á sér kræla? Svarið við því er einfalt: Pólitísk hugsjón, pólitískar hugsjónir sem hafa mótast með okkur allt frá barnsaldri og endurspegla reynslu okkar, bakgrunn og sýn á lífið almennt. Hugsjónir sumra hér byggjast fyrst og fremst á trúnni á mátt einstaklingsins, hvernig dugnaður hans drífi áfram allar framfarir og að samfélagið sé sífellt að flækjast fyrir og trufla með reglum og skilyrðum. Þetta er fólki til hægri í stjórnmálunum. Við sem eru til vinstri byggjum okkar heimssýn á samtakamætti fjöldans, hugsjóninni um jöfnuð og félagslegt réttlæti.

Á síðustu áratugum höfum við séð slakna á hinni félagslegu taug með vaxandi einstaklingshyggju, ekki bara hér á landi heldur víðast hvar á Vesturlöndum með vaxandi stéttarmun. Þessu viljum við Vinstri græn vinna gegn. Það er því mikilvægt að þeir stóru kjarasamningar sem gerðir hafa verið á vinnumarkaði síðustu misserin hafa öðru fremur gengið út á að verja og bæta kjör þeirra hópa sem lægst hafa launin. Þessir samningar voru gerðir með mikilvægri aðkomu ríkisvaldsins og undir styrkri leiðsögn Katrínar Jakobsdóttur, fyrrverandi forsætisráðherra.

Ein af stóru forsendum síðustu kjarasamninga var öflug innkoma hins opinbera, ríkis og sveitarfélaga, t.d. með gjaldfrjálsum máltíðum í grunnskólum. Þetta er gamalt baráttumál okkar í Vinstri grænum. Gjaldfrjálsar skólamáltíðir eru mikil kjarabót fyrir barnafjölskyldur og eitt besta tækið til að vinna gegn fátækt barna og stuðla að jafnrétti til náms en geta líka, ef vel er að staðið, verið bæði umhverfismál og lýðheilsumál.

Það sama gildir um húsnæðismálin. Húsnæðismál eru eitthvert mikilvægasta kjaramál almennings. Þróun húsnæðisverðs og gríðarlegur þrýstingur á húsnæðismarkaði er eitt stærsta samfélagslega viðfangsefnið um þessar mundir. Það verður sífellt erfiðara fyrir fólk að komast inn á markaðinn, nema með stuðningi t.d. foreldra. Við Vinstri græn viljum ekki sjá samfélag þar sem þau ein geta vænst þess að eiga þak yfir höfuðið sem hafa sterkt bakland en önnur búa við óöryggi og leiguokur. Þess vegna hefur verið gripið til og er verið að grípa til ýmissa aðgerða sem tengjast húsnæðismarkaðnum. Landsmenn hafa þegar notið góðs með hækkun húsnæðisbóta og sérstökum vaxtastuðningi sem lág- og millitekjuhópar fengu í vor og var greiddur inn á höfuðstól húsnæðislána.

Eftir áralangar umræður í tíð fjölda ríkisstjórna hillir með frumvarpi félags- og vinnumarkaðsráðherra loks undir einfaldara og betra kerfi fyrir örorkulífeyrisþega. Með nýju kerfi mun samfella í greiðslum vegna sjúkra- og endurhæfingar verða tryggð og 18 milljarðar bætast við það sem fyrir var til að bæta kjör fólks þar sem áherslan er lögð á að lyfta mest þeim hópi sem minnst hefur fyrir. Þá er óháð og sjálfstæð Mannréttindastofnun að verða að veruleika sem auk bættrar mannréttindaverndar allra er undanfari þess að hægt verður að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Ágætu tilheyrendur. Pólitískar hugsjónir hvers einstaklings eru samsettar úr mörgum lögum. Sjálf hóf ég mín stjórnmálaafskipti sem táningur á vettvangi friðarhreyfingarinnar: að berjast gegn ofbeldi, hernaðarhyggju og vitfirrtu vígbúnaðarkapphlaupi með vopnum sem geta gjöreytt öllu mannkyninu margsinnis. Friðarstefnan er einmitt ein af fjórum meginstoðum Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs ásamt sósíalismanum, kvenfrelsinu og umhverfisverndinni.

Friðarhugsjónin á undir högg að sækja nú um stundir. Stríðsæsingurinn og áróðurinn fyrir þeirri hugmynd að frið megi tryggja með vopnavaldi hefur verið fyrirferðarmikill í samfélaginu, einkum eftir innrás Rússa í Úkraínu. Auk stríðsins þar í landi hefur veröldin horft agndofa á hryllinginn í Palestínu þar sem ísraelska hernaðarvélin, dyggilega studd af Bandaríkjunum, helsta vopnaveldi í heimi, fremur ítrekaða stríðsglæpi í aðgerðum sem erfitt er að kalla annað en þjóðarmorð. Það er ánægjulegt að Alþingi Íslendinga hafi sameinast fyrr í vetur um ályktun þar sem þess var krafist að ofbeldinu á Gaza lyki. Það er líka eftirtektarvert að ofsafengnar árásir Ísraelshers og forhert viðbrögð leiðtoga Ísraels hafi orðið til þess að á síðustu vikum hafa nokkur Evrópuríki stigið það skref að viðurkenna sjálfstæði Palestínu á grunni tveggja ríkja lausnarinnar. Þar feta þau í fótspor okkar Íslendinga sem vorum fyrsta landið í Vestur-Evrópu til að stíga það skref.

Blóðbaðið í Palestínu hefur hreyft við mörgum, ekki hvað síst ungu fólki sem fyllist skiljanlega reiði og vanmætti gagnvart ofbeldinu og þjáningum fólksins þar. Þetta birtist meðal annars í fjölda mótmælafunda og aðgerða, sem við m.a. heyrum í, þar sem þúsundir hafa mætt til að tjá skoðanir sínar. Ég fagna því að fólk og þá sérstaklega þau sem yngri eru eigi hugsjónaeld sem knýr þau til mótmæla. Ég deili ekki ótta þeirra valdhafa sem telja friðsama mótmælendur háskalega og kjósa fremur að mæta þeim með valdi en með opnum eyrum.

Stríðið í Palestínu, ef stríð skyldi kalla þegar um svo einhliða hernað er að ræða, og stríðið í Úkraínu eru eins og öll önnur stríð, og þau eru allt of mörg í heiminum í dag, þau verða aðeins leyst við samningaborð, með því að menn leggi niður vopn og geri málamiðlanir. Það er staðreynd. Því er uppörvandi að skynja það að þótt pólitískur stuðningur við vígvæðingu og vopnavald hafi kannski aldrei verið meiri þá virðist stór hluti almennings hafa trú á lausn friðarins og fagna sérstöðu okkar sem herlausrar þjóðar.

Kæru landsmenn. Langur þingvetur er senn á enda. Líkt og ég hef farið yfir munu liggja eftir hann fjölmörg mál sem eru til hagsbóta og framfara. Markmiðið hlýtur alltaf að vera að gera heiminn betri í dag en hann var í gær. Það er það sem drífur okkur áfram. — Njótum sumarsins.