154. löggjafarþing — 121. fundur,  12. júní 2024.

Almennar stjórnmálaumræður.

[20:46]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Kæru landsmenn. Nýkjörinn forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, hefur sagt að hugrekki sé hópíþrótt og mig langar að gera þau orð hennar að mínum hér í kvöld. Þegar hæstv. ráðherrar kynna til leiks kostnaðarsöm verkefni, sem skortir ekki bara fjármagn heldur líka pólitískan stuðning samstarfsflokka til að fylgja þeim eftir alla leið, þá er hugrekkið á þrotum. Stjórnmálin eru ekki einstaklingsíþrótt. Það er eins og ráðherrunum sé meira umhugað um að bjóða hvert öðru birginn en að sýna þjóðinni hugrekki og þjóna henni vel. Þetta birtist í vanræktum og vanfjármögnuðum verkefnum og, þegar verst lætur, ömurlegum ummælum um glæpi gegn mannkyni.

Talandi um vanfjármagnaðar umbætur þá hefur sennilega sjaldan verið meira krefjandi að vera kennari en á liðnum árum. Frammistaða íslenskra nemenda í alþjóðlegu PISA-könnuninni er sú versta í norrænum samanburði enn eitt árið og árangur barnanna okkar hrapar á milli ára. Stjórnvöld virðast svo sem átta sig á vandanum, en hvers vegna ættum við að treysta þeim til að bæta úr stöðunni strax á næsta skólaári? Viðeigandi viðbrögð hér gætu til að mynda verið þverpólitískt átak, samstiga leiðangur ríkis, sveitarfélaga og atvinnulífsins, fagfólksins og foreldra. Þarna myndum við jafnaðarmenn svo sannarlega ekki láta okkar eftir liggja. Hér er allt of mikið í húfi.

En góðir landsmenn. Hér er ekkert þverpólitískt stórátak í menntamálum. Þvert á móti. Til dæmis hafnar ríkið því að greiða með íslenskukennslu allra barna í Reykjavík sem eiga annað móðurmál en íslensku. Þennan heimatilbúna vanda gæti þessi ríkisstjórn leyst með einu pennastriki, með pólitískan vilja og vott af hugrekki að vopni. Nei, í staðinn á að heyja rimmu við Reykjavíkurborg fyrir dómstólum og á meðan skulu kennarar hlaupa hraðar. Er ríkisstjórn, sem kemur svona fram við börn sem þurfa að læra góða íslensku, treystandi til að gerbylta íslensku menntakerfi til hins betra? Eða að efla íslenska tungu á umbrotatímum? Athugum að skólunum er ætlað algert lykilhlutverk í inngildingunni, í að taka vel á móti fólki af erlendum uppruna. Það þarf að fjármagna verkefnin til fulls því að þegar á hólminn er komið eru þetta enn þá aðeins óbyggðar skýjaborgir, viljayfirlýsingar. Það nægir heldur ekki að bjóða skólagjaldalausa háskóla þegar stúdentar ná ekki endum saman og háskólanám gæti með þessu áframhaldi orðið aðeins á færi forréttindahópa.

Forseti. Það er ekki svo óralangt síðan að skólaganga stóð ekki öllum til boða. Leikskólar eins og við þekkjum þá í dag voru ekki til þegar ég fæddist í þennan heim fyrir tæpum fjörutíu árum síðan. Í dag vill enginn án þeirra vera. Þessu breyttu femínistar og félagshyggjufólk. En þetta er fjöregg sem við getum svo auðveldlega misst úr höndunum á okkur ef við gleymum því að skólarnir eru líka jöfnunartæki og fólkið sem starfar innan þeirra á að búa við frábærar starfsaðstæður. Á endanum snýst þetta um að greiða rétt verð fyrir verkefni sem áður voru unnin endurgjaldslaust af hálfu kvenna. Í byrjun árs voru kynntar metnaðarfullar aðgerðir forsætisráðuneytisins um endurmat á virði kvennastarfa og það verður áhugavert að fylgjast með hæstv. forsætisráðherra vinna að þeim. Ég vil óska honum sérstaklega góðs gengis við að ná fram markmiðum forvera síns í starfi um að ná hér fullu kynjajafnrétti fyrir árið 2030.

Forseti. Á Íslandi búa leiftrandi klár börn og við eigum hæfileikaríka kennara til að búa þau undir framtíðina. Börnin okkar hafa notið góðs af hárri atvinnuþátttöku kvenna og metnaðarfullu skólastarfi og ekki síst leikskólastarfi sem hefur veitt þeim öryggi í þéttofnu samfélagi, samfélagi sem núna er að verða stærra og flóknara en líka að mörgu leyti áhugaverðara. Nei, börnin okkar eru ekki síður fær til náms, en það er eitthvað sem bendir til þess að norræn nágrannaríki okkar hafi haldið talsvert betur á menntamálum en við. Það er ekki til nein töfralausn en við getum samt náð árangri með réttum áherslum. Um þær þarf að ríkja skýr pólitísk sýn og ekki síst hugrekki. Þá sýn og það hugrekki höfum við jafnaðarmenn í Samfylkingunni.