Almennar stjórnmálaumræður.
Virðulegur forseti. Kæru landsmenn. Það er mjög gróft fjárhagslegt ofbeldi að skerðingar á lífeyrislaunum öryrkja og eldra fólks í almannatryggingakerfinu séu að verða um 100 milljarðar samtals á þessu ári. Að skatta og keðjuverkandi skerða tekjur fjölda þeirra sem eru í almannatryggingakerfinu ár eftir ár um 70% til allt að 100% er alveg með ólíkindum og gjörsamlega fáránlegt. Það að 52.000 einstaklingar á lífeyrislaunum frá TR hafi fengið ofgreitt og þeir verði að endurgreiða í samræmi við það, frá og með 1. september næstkomandi, er enn fáránlegra. Fjöldi þeirra sem fengu ofgreitt er um 80%. Ástæðan er fyrst og fremst vegna verðbólgu sem hefur haft mikil áhrif á lífeyrissjóðsgreiðslur, það er ein af skýringunum frá TR. Það er gerð krafa til aldraðs fólks og öryrkja um að það geti reiknað hækkun lífeyrislauna frá lífeyrissjóðunum vegna verðbólgu ár fram í tímann. Það hefur ekki Seðlabankinn, ekki bankarnir eða ríkisstjórnin nokkurn tímann gert en þessi fáránlega krafa er gerð til aldraðs og veiks fólks, sem er auðvitað algjört rugl. 13.000 manns á lífeyrislaunum verða að endurgreiða 200.000–600.000 kr. til baka og rúmlega 5.000 manns þurfa að borga yfir 600.000 kr. aftur til TR.
Hvers vegna hefur ríkisstjórn eftir ríkisstjórn undanfarna áratugi byggt upp svona arfavitlaust kerfi og viðhaldið því með þessum auknu skerðingum sem nú stefna í um 100 milljarða kr. á ári, eins og áður hefur komið fram?
Lögþvingaður, eignaupptökuvarinn lífeyrissjóður er notaður til að skerða lífeyrislaun um 45% frá Tryggingastofnun ríkisins strax eftir skatt og það eftir bara aum 25.000 kr. frítekjumörk. Þetta bitnar harðast og verst á þeim sem síst skyldi, öldruðu fólki og öryrkjum og þar eru konur fjölmennasti hópurinn. Þetta gerist þrátt fyrir endurtekin loforð fyrir kosningar um að breyta þessu ómannúðlega og grófa eignaupptökukerfi sem leiðir fólk beint í fátækt.
Hvers vegna er öllu snúið á hvolf í þessum stórfurðulega bútasaumaða óskapnaði sem almannatryggingakerfið er orðið, kerfi sem er gert viljandi svo flókið að bara tölva getur reiknað út keðjuverkandi skerðingar til þeirra verst settu og sent þá og fjölskyldu þeirra beint, ekki bara í fátækt heldur sárafátækt? Á sama tíma borga þeir sem græða á tá og fingri á sameiginlegum auðlindum þjóðarinnar lítið sem ekkert í skatt af ofurgróðanum. Þá er ekki tekin króna, hvað þá aur, af þeim í skerðingar eða keðjuverkandi skerðingar af milljarðagróðanum.
Kæru landsmenn. Einfaldast væri að hækka greiðslur almannatrygginga strax um 23.750 kr. afturvirkt frá 1. febrúar eins og samið var um á almennum launamarkaði og einnig um þá sömu upphæð þann 1. janúar 2025. Nei, það gengur ekki upp hjá þessarar ríkisstjórn. Nei, alls ekki, því að eina hækkunin sem frá henni kemur til þeirra sem reyna af fremsta megni að tóra í almannatryggingakerfinu er hrærigrautur óskiljanlegs vísitöluhrærings um hver áramót sem enginn botnar upp eða niður í.
Kjaragliðnunin undanfarið mun aukast enn meira en orðið er í boði þessarar ríkisstjórnar og króna á móti krónu skerðingar munu áfram sparka fjárhagslega í hóp eldra fólks sem hefur það verst í almannatryggingakerfinu og það hjá öldruðu fólki sem er aðeins með 90% af lágmarkslífeyri almannatrygginga. Nei, skerðingarófétið, í hvaða mynd sem það birtist frá þessari ríkisstjórn, mun viðhalda og halda áfram fjárhagslegu ofbeldi á þessa hungurlús sem þeim verst settu í okkar ríka samfélagi er skammtað úr þeirra kreppta hnefa svo að þeir fátæku verða sárafátækir og eiga enn síður fyrir mat eða lyfjum en nú er.
Heilbrigðiskerfið er á ystu nöf. Þú ert númer hvað á bið eða ertu ekki kominn á biðlista yfir höfuð þar sem þú náðir ekki að hringja inn á réttum tíma? Eitt barn á biðlista er einu barni of mikið. Börn eiga skýlausan rétt á nauðsynlegri þjónustu og það strax. Geðheilsa barna og ungmenna á alltaf að vera í forgangi. Börn eru í sárafátækt, eldri borgarar eru í sárafátækt, atvinnulausir og láglaunafólk er í sárafátækt. Er ekki kominn tími á sanngirni og réttlæti handa öllum, að allir séu jafnir fyrir lögum og njóti óskoraðra mannréttinda? Það á að vera númer eitt á forgangslistanum að börnum sé tryggð sú vernd og umönnun sem velferð þeirra krefst.
Fólkið fyrst, svo allt hitt, segjum við í Flokki fólksins. — Góðir landsmenn. Eigið góðar stundir.