Almennar stjórnmálaumræður.
Forseti. Kæra þjóð. Í kvöld tala ég sérstaklega til minnar kynslóðar, kynslóðarinnar sem tekur bráðlega við keflinu í stjórnmálum. En núverandi ráðamenn hafa ákveðið að afhenda minni kynslóð laskað traust til lýðræðisins, Alþingis og vafa um tilgang stjórnmálamanna.
Við stöndum frammi fyrir sérkennilegri stöðu í stjórnmálum í dag. Þrátt fyrir sjö ára valdasetu þessarar ríkisstjórnar þar sem nægur tími hefur gefist til að tryggja stöðugleika stöndum við frammi fyrir meiri óvissu en ég hef áður upplifað. Óvissa um málefni Grindvíkinga sem þurftu að flýja heimili sín fyrir mörgum mánuðum, óvissa vegna loftslagsbreytinga, óvissa þegar kemur að fyrirsjáanleika í pólitík, óvissa um hvaða ráðherra situr í hvaða ráðuneyti og óvissa um hvort næsta ríkisstjórn sé að taka við ríkissjóði eða þrotabúi.
Píratar vilja breyta þessu. Við sjáum að það er nauðsynlegt að skoða á hvaða stoðum við viljum byggja samfélagið okkar og til þess þarf aðkomu og umboð fólksins í landinu. Píratar munu efla lýðræði, gagnsæi og aðkomu og þátttöku almennings í ákvörðunum sem varða samfélagið. Með því að auka ábyrgð og minnka hagsmunagæslu hins háværa minni hluta í stjórnmálum þá stefna Píratar að því að endurheimta traust almennings á stjórnkerfinu og tryggja að stjórnvöld starfi í þágu fólksins, ekki í þágu sérhagsmuna.
Það er orðið vel þreytt að horfa yfir feril þessarar ríkisstjórnar sem virðist hafa verið búin til um það eitt að gera ekkert, fagna fortíðinni og kæfa allar tilraunir til jákvæðra breytinga. Það hafa eflaust einhver góð verk náð fram að ganga undir forystu Framsóknarflokksins, Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokksins en þau hafa týnst í hneykslismálum, stólaleikjum, spillingu, óskhyggju í umhverfis- og loftslagsmálum og vangetu til ná nokkrum málum í gegn vegna störukeppni milli stjórnarflokkanna. Við í Pírötum erum í liði með fólkinu í landinu sem er fyrir löngu orðið þreytt á þessu. Traust og áhugi á stjórnmálum hefur samhliða þessu farið dvínandi. Það er á ábyrgð alls stjórnmálafólks að endurheimta traustið og auka þátttöku fólks í stjórnmálum, að vera góð fyrirmynd og sýna fólki að það er hægt að vera í pólitík af heilindum.
Jákvæð teikn eru á lofti. Forsetakosningarnar voru forskrift að því sem koma skal í næstu alþingiskosningum þar sem ungt fólk mætti á kjörstað og hafnaði nostalgíustjórnmálum. Hræðsla stjórnarflokkanna við kosningar er skiljanleg. Kjósendum þeirra fer fækkandi á meðan nýir kjósendur brenna heitt fyrir því að tryggja framtíð sinnar kynslóðar. Það mun ekki stranda á Pírötum að gera okkar til að efla lýðræðislega þátttöku almennings, enda var hreyfingin mynduð í kringum þá fallegu hugmyndafræði. Við trúum á opna stjórnsýslu, aðgengi að opinberum upplýsingum og þátttöku almennings í stjórnmálum svo raddir allra borgara heyrist. Með áherslu á mannréttindi, friðhelgi einkalífs og beint lýðræði vilja Píratar skapa réttlátt og sanngjarnt samfélag fyrir öll. Við munum vinna að því að tryggja að öll hafi aðgang að heilbrigðisþjónustu, menntun og félagslegum stuðningi, óháð kyni, kynþætti, aldri, trúarbrögðum eða þjóðerni. Þessar breytingar eru lykilatriði þegar kemur að því að endurheimta traust fólks á stjórnmálum eftir áratugi af frændhygli, spillingu og verkstoli gömlu flokkanna.
Með því að byggja stjórnmál landsins á hugmyndafræði frelsis og mannréttinda er krafa um að stjórnmálin standi vörð um borgararéttindi fólks. Við látum í okkur heyra þegar gengið er á slík réttindi og mótmælum þegar okkur misbýður stríðsrekstur út í heimi þar sem alþjóðalög eru mölbrotin og þjóðarmorð er daglegt brauð sem við neyðumst til að fylgjast með í beinni útsendingu án þess að ráðamenn segi nokkurt orð.
Kæra þjóð. Óvissan mun alltaf vera hluti af lífi okkar. Hún birtist okkur m.a. í formi jarðhræringa, veðurofsa og lægða í júní, en útkoma óvissu getur líka haft jákvæð áhrif sem Íslendingar geta stundum hagnýtt sér. Að lágmarka neikvæð áhrif óvæntra atburða og ýta undir þá jákvæðu er einmitt stór hluti af því að vera í forsvari fyrir þjóðina. Það ætti hins vegar ekki að vera hlutverk stjórnvalda sjálfra að vera stór hluti þessarar óvissu og éta þannig upp tíma, fjármuni og athygli við að slökkva elda sem hefði verið hægt að koma í veg fyrir til að byrja með. En til að svo verði þarf ríkisstjórn sem ætlar að vinna saman. Ríkisstjórn sem er einhuga um stóru málin. Ríkisstjórn sem kann að finna út úr litlu málunum sín á milli eins og fullorðnu fólki sæmir. Ríkisstjórn sem ætlar að færa Ísland inn í framtíðina. Ríkisstjórn sem byggir á sameiginlegum gildum. Sú ríkisstjórn þarf á aðkomu og þátttöku minnar kynslóðar að halda. Enginn er að fara að afhenda okkur keflið, við þurfum að beita okkur fyrir því sjálf. Því segi ég við unga fólkið í landinu: Mætum á kjörstað, tökum þátt í stjórnmálum og tökum okkar sæti við samningaborðið þar sem ákvarðanir eru teknar. Næsta ríkisstjórn, sem starfar fyrir öll í landinu og stendur vörð um mannréttindi og frelsi, bíður spennt handan við næstu alþingiskosningar.