Almennar stjórnmálaumræður.
Virðulegi forseti. Kæra þjóð. Sonur minn er sjö mánaða. Hann var bara fimm mánaða þegar ég kom nokkuð óvænt hér inn á þing. Síðan þá hefur hann verið tíður gestur á göngum þingsins og í hliðarsölum. Eins og oft er sagt þá er vika langur tími í pólitík. Við erum hér í miðri þingviku og ég get svo sannarlega tekið undir þann góða frasa. Tíminn er einmitt eitt mikilvægasta viðfangsefni stjórnmálanna. Tíminn eða öllu heldur framtíðin. Það sem við gerum hér á Alþingi í nútíð mótar framtíðina. Lögin sem eru sett hér eru leiðarvísir okkar, leiðarvísir samfélagsins. Við vinnum enn að ýmsum málum, ýmist í skjóli eða skugga, eftir lögum sem sum voru sett fyrir heilum mannsaldri.
Þessir tæpir tveir mánuðir sem liðnir eru af lífi sonar míns síðan ég settist á þing eru tæplega þriðjungur ævi hans. Það er eins og rúmur áratugur miðað við minn aldur. Á síðustu tíu árum höfum við sem þjóð upplifað gríðarlegar breytingar og margt hefur breyst til hins betra. Við höfum klifrað upp regnbogakortið. Við höfum séð aukinn jöfnuð í samfélagi sem verður æ fjölbreyttara. Við höfum séð byltingu í samfélagsumræðu um geðheilbrigði, um kynferðisofbeldi, um samfélagsmein sem áður voru þögguð niður. En mannréttindabarátta er ekki alltaf línuleg. Það er því miður þannig að sigrar sem hafa áunnist geta gengið til baka. Nú sést loks til lands með stofnun mannréttindastofnunar sem mun spila mikilvægt eftirlitshlutverk með mannréttindum á Íslandi.
Loftslagsmálin hafa sett spor sín á síðustu tíu ár og það er nokkuð ljóst að næstu tíu ár verða afgerandi enda tíminn til aðgerða af skornum skammti. Mikilvægi sterkrar og vel uppbyggðrar löggjafar og áætlana sem fylgja eftir settum loftslagsmarkmiðum er augljóst og það er ekki eftir neinu að bíða. Við megum ekki missa sjónar á markmiðunum. Loftslagsmálin snúast ekki bara um græna orku þótt orkuskipti séu vissulega stór hluti markmiða okkar um kolefnishlutleysi og orkuöryggi. Framtíðin þarf að búa yfir líffræðilegum fjölbreytileika, ekki ljósmyndum á safni af lífverum sem einu sinni voru til. Náttúran okkar, óspilltu víðernin, fallvötnin, hálendið; allt eru þetta auðæfi sem börnin okkar eiga skilið að erfa.
Stóra verkefnið okkar á tímum sem þessum er svo að auka velsæld og verja og styrkja innviðina og velferðarkerfið. Við viljum jú öll lifa í réttlátu samfélagi. Endurskoðun almannatryggingakerfisins þar sem hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra hefur leitt mikilvæga vinnu í átt að sanngjarnara og gagnsærra kerfi, réttlátara kerfi, er mikilvægur liður í því viðamikla verkefni sem endar aldrei. Efling virkra samgöngumáta og almenningssamgangna, m.a. með borgarlínu sem hæstv. innviðaráðherra hefur lagt áherslu á að verði komið á sem fyrst, er risastórt umhverfis- og efnahagsmál auk þess að vera mikilvæg hagsbót fyrir barnafjölskyldur og fólk í þröngri fjárhagsstöðu.
Virðulegi forseti. Kæru landsmenn. Flestum kynslóðum finnst þær líklega standa á einhvers konar tímamótum. Tíminn er nefnilega mikilvægasta viðfangsefni stjórnmálanna. Með tímanum breytast viðhorf og venjur og atvinnulífið tekur sömuleiðis breytingum í takt við samfélagið og vísindalega framþróun. Einhvern tímann verða hvalveiðar úr sögunni. Einhvern tímann verður eldi frjórra laxa í opnum sjókvíum fjarstæða. Það er bara spurning um tíma, ekki hvort heldur hvenær sólin sest á ósjálfbæra auðlindanýtingu og forneskjuleg viðhorf.
Sonur minn tíðræddi er Íslendingur og Þjóðverji. Í hinu heimalandi hans er ógnvænleg hægri sveifla í gangi eins og raunar víða á Vesturlöndum. Öfgahægriflokkar sækja í sig veðrið og vinstrið á víða undir högg að sækja, líka hér á landi. Vinstri vængurinn er ekki brotinn en hann er laskaður. Það er hlutverk okkar að standa vörð um vinstrið og á sama tíma sporna við skautun. Það er erindi mitt og minna félaga í VG; erindi sem ég tel mikilvægt til að skapa þá framtíð sem sonur minn og hans kynslóð eiga sannarlega skilið.