Almennar stjórnmálaumræður.
Frú forseti. Þingið, sem senn verður slitið, hefur fyrir margra hluta sakir verið sérstakt. Enn á það möguleika á að verða bara næstundarlegasta þingið á líftíma þessarar ríkisstjórnar, en það er fjarri því öruggt að það taki ekki toppsætið.
Þrautaganga stjórnarflokkanna hefur orðið átakanlega augljós á liðnum vikum. Þau okkar sem töldu að stjórnarflokkarnir ætluðu sér að nýta þinghléið til að jafna ágreining og leiða mál í jörðu urðu hissa þegar þing kom saman í byrjun síðustu viku og við blasti að aðeins hafði verið hert á hnútunum á meðan þingið brá sér frá. Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins nýtur þess nú að kjamsa á nýrri ríkisstofnun, Mannréttindastofnun, ofan á allar hinar stofnanirnar sem höndla með þau mál og ófjármögnuðu listamannalaunin og ófjármagnaða þjóðaróperan, allt hlýtur þetta að vekja gleði.
Vinstri grænir gleðjast svo yfir því að hafa samþykkt ný útlendingalög, sem eru til bóta þótt enn sé of skammt gengið. Breyting á lögreglulögum er þeim eflaust mjúkur biti undir tönn, enda útilokað fyrir Sjálfstæðisflokkinn að sjá það mál ekki klárast, það væri beinlínis niðurlægjandi fyrir flokkinn. En Vinstri grænir fá Mannréttindastofnun sína, þannig að þeir kyngja rest.
Framsóknarmennirnir halda svo áfram baráttunni við sjálfa sig þar sem minkurinn er kominn í hænsnakofann en samt virðist meiri hluti lykilfrumvarpa flokksins ekki fjármagnaður að fullu og augljóslega ætlunin að senda vandamálið yfir á næstu ríkisstjórn, næsta ráðherra hvers málaflokks sem fær þá að útskýra, t.d. fyrir óperuunnendum, að því miður þurfi þingmannakórinn að syngja í nýju þjóðaróperunni fyrstu árin vegna fjárskorts, að nýju listamannalaunin þurfi að sækja í sjóði sem sömu listamenn hafa sótt í hingað til og að ekki verði stungið niður skóflu vegna nýframkvæmda á heilu landsvæðunum næstu fimm árin þar sem framúrkeyrsla verkefna í kjördæmi fyrrverandi innviðaráðherra sogi það til sín sem til ráðstöfunar verður.
Fyrir stuðningsmenn stjórnarinnar er auðvitað huggun harmi gegn að stjórnarflokkarnir, í öllu falli ráðherrarnir, hafi fallist í faðma vegna meðhöndlunar matvælaráðherra á umsókn um leyfi til hvalveiða, en matvælaráðherra upplýsti að afloknum ríkisstjórnarfundi í gær að aðrir ráðherrar hefðu bara alls ekki sett þrýsting á sig. Hvernig þingflokkar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks komust á þennan stað verður rannsóknarefni til framtíðar. Og jú, svo eru það samskipti fjármálaráðherra og dómsmálaráðherra í dag, en við látum það liggja milli hluta í bili.
Hv. þm. Ágúst Bjarni Garðarsson sagði hér áðan að þegar á reyndi þá stæðum við saman. En það hefur verið athyglisvert að hlusta á þingmenn stjórnarflokkanna sem hér hafa talað í kvöld. Enginn þeirra hefur talað um ríkisstjórnina. Það er enginn í þessari ríkisstjórn. Hún er fallin. Hver og einn þeirra talaði bara um flokkinn sinn. Veitið þessu athygli þegar þið hlustið á þetta aftur, þetta eru allt saman skemmtilegar ræður.
Hæstv. orkumálaráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, gleymdi einu spjaldi í ræðu sinni hér áðan þar sem ráðherrann sagði frá því hversu undarlegt honum þætti að þurfa að útskýra fyrir útlendingum að á þingi væri fólk sem vildi ekki græna orkuframleiðslu. Spjaldið sem hæstv. ráðherra gleymdi var spjaldið sem sagði frá því hvernig hann sjálfur útskýrir það að vera í ríkisstjórnarsamstarfi með flokki sem hefur ekki mikinn áhuga á grænni orkuframleiðslu. En þetta spjald hlýtur að fljóta upp einhvern daginn.
Hv. þm. Kristrún Frostadóttir spurði hér áðan: Hvað þarf fólk að þola þessa ríkisstjórn lengi? Svarið er: 465 dagar í mesta lagi. [Hlátur í þingsal.] Þessi ríkisstjórn getur skakklappast áfram í eitt ár og 100 daga til ef hún reynir allt sem hún getur og það er auðvitað ákveðin hætta á því. En sjáum til hvað verður.
Ég hef stuttan tíma út af svolitlu [Hlátur í þingsal.] en að endingu vil ég segja við þá kæru Grindvíkinga sem enn hafa fallið milli skips og bryggju varðandi þær lausnir sem boðið er upp á: Ég vona að það takist að standa almennilega með ykkur hér eftir. Við bændur landsins vil ég segja: Standið ykkur vel í baráttunni sem þið standið í eftir veðurskotið fyrir norðan og austan.
Góðir landsmenn. Ég held að sumarið eigi eftir að verða afbragðsgott. Við í þingflokki Miðflokksins ætlum að flandra um og reyna að hitta sem flesta. En til að sumarið verði enn þá betra en annars yrði hvet ég ykkur til að hlusta á Sjónvarpslausa fimmtudaga sem koma í loftið á hverjum fimmtudegi. [Hlátur í þingsal.] Þar munum við í þingflokki Miðflokksins halda áfram að bæta, hressa og kæta.