skipulag þingstarfa.
Herra forseti. Við erum hér með ríkisstjórn sem er hvorki lifandi né dauð og við verðum bara að sætta okkur við það. Það eina sem við óskum eftir er að þingflokksformenn stjórnarliða kalli okkur saman og upplýsi okkur um stöðuna vegna þess að þetta er farið að stappa nálægt dónaskap hvernig komið er fram við helming þingheims. Ofan í það situr hæstv. forsætisráðherra hérna og hlær að ræðumönnum í myndavél og það er ekki í fyrsta skipti sem hæstv. forsætisráðherra á þessu ári hefur gert þjóðina og þingið að athlægi. En í guðanna bænum, við hin sem erum kjörin þingmenn, getum við hist og farið yfir málin? Það er ekkert að því að vera starfandi eitthvað fram eftir mánuðinum og jafnvel inn í næsta mánuð. En í guðanna bænum, segið okkur hvað er á seyði. Við getum ekki búið við það að vera haldið í algjörri óvissu vegna þess að hæstv. forsætisráðherra er algjörlega getulaus til að halda þessari ríkisstjórn saman. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)