154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

skipulag þingstarfa.

[10:48]
Horfa

forsætisráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Það er erfitt að verjast hlátri þegar menn koma upp í ræðustól Alþingis með viðlíka þvælu eins og fundardagskráin byrjar á hér í dag, að það sé eitthvað mikið áhyggjuefni að við ætlum að ræða útlendingalögin hér í dag. Heyr á endemi. Þetta er eitt af stærri málum ríkisstjórnarinnar, það er komið á lokametrana. Ég geri mér grein fyrir því að stjórnarandstaðan er sundruð um málið og á kannski erfitt með að ræða það hér. Miðflokksmenn hafa sagt að það mál myndi aldrei klárast og eru þess vegna eflaust líka furðu lostnir að málið skuli rætt hér í dag. (Gripið fram í.) En menn vilja endilega að eitthvað annað sé rætt og það er stóra málið, það er stóra áhyggjuefnið, það er það sem þjóðin er að sligast undan, að við séum ekki að ræða fjármálaáætlun heldur útlendingamálin í dag. Er mönnum alvara? Er mönnum alvara að bjóða upp á aðra eins þvælu hér? Svo eru menn hissa á að maður skuli svona brosa í kampinn og spyrja sig: Hvað er þessi stjórnarandstaða að reyna? Þessir ofnotuðu frasar um að ríkisstjórnin sé búin með erindi sitt o.s.frv. — staðreyndin er sú (Forseti hringir.) að þingstörfin ganga ágætlega. Við erum að fara að klára uppistöðuna af þeim þingmálum sem liggja fyrir þinginu. (Forseti hringir.) Það eina sem kemur í veg fyrir það er málþóf og ræðuhöld um fundarstjórn forseta.

(Forseti (BÁ): Forseti minnir á að ræðutími í umræðum um fundarstjórn forseta er aðeins ein mínúta en ekki meira.)