efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar.
Virðulegi forseti. Við skulum endilega taka málefnalega og djúpa umræðu um það hvernig ríkisstjórninni hefur tekist, í samvinnu við aðila vinnumarkaðarins og aðra, að tryggja góð kjör fyrir alla Íslendinga. Frá árinu 2021 til ársins 2023 er Ísland eina landið á Norðurlöndunum þar sem kaupmáttur hefur ekki rýrnað heldur farið upp um 1%. Á því tímabili dróst kaupmáttur saman í Danmörku um 3%, um 3% í Finnlandi, sömuleiðis í Noregi og Svíþjóð og í Evrópusambandinu. En hér kemur hv. þingmaður, formaður Samfylkingarinnar, ítrekað og segir að við séum búin að missa stjórn og fólkið líði fyrir ríkisstjórnina þegar tölurnar segja bara allt aðra sögu.
Okkur hefur tekist framúrskarandi vel að takast á við heimsfaraldur kórónuveiru. Við stóðum með atvinnulífinu og heimilunum, vörðum kaupmáttinn. Hér hafa laun hækkað meira, hagvöxtur hefur verið miklu meiri. Við höfum stækkað kökuna sem hefur alltaf verið mín pólitík. Stækkum kökuna, þá verður meira úr að spila fyrir alla. Það er nákvæmlega það sem hefur gerst og það sýna tölurnar. (Forseti hringir.) Það er erfitt fyrir hv. þingmann að horfast í augu við það en við skulum ræða staðreyndir.