tillaga um breytingu á lögum um útlendinga.
Forseti. Í eldhúsdagsumræðum í gær sagði hæstv. dómsmálaráðherra, Guðrún Hafsteinsdóttir, með leyfi forseta:
„Það er sjálfsögð og eðlileg lágmarkskrafa að þeir sem dvelja hér á landi, hvort sem um er að ræða Íslendinga eða aðra, fari eftir íslenskum lögum. Þess vegna segi ég skýrt að það er mín skoðun að ef flóttamaður gerist uppvís um alvarlegan glæp á Íslandi á að svipta hann dvalarleyfi. Það er frumskylda mín sem ráðherra og stjórnvalda að tryggja öryggi borgara í þessu landi og vil ég því setja sambærilegt ákvæði í íslensk lög og finna má á hinum Norðurlöndunum hvað þetta varðar.“
Við í Flokki fólksins erum sammála hæstv. dómsmálaráðherra en við skiljum ekki alveg hvers vegna það þarf að gefa fyrirheit um að lagafrumvarp sem tryggi þessa breytingu verði lagt fram einhvern tíma í framtíðinni. Á dagskrá þingfundar í dag er einmitt frumvarp um breytingu á útlendingalögum. Því höfum við í Flokki fólksins ákveðið að veita hæstv. dómsmálaráðherra liðsinni og við höfum lagt fram breytingartillögu sem mælir fyrir um að ef flóttamaður verður uppvís um alvarlegan glæp á Íslandi skuli umsvifalaust svipta hann dvalarleyfi og hann sendur úr landi.
Ég vil spyrja hæstv. forsætisráðherra hvort hann taki ekki þessari breytingartillögu okkar fagnandi með því að greiða atkvæði með henni. Ég bendi hæstv. forsætisráðherra einnig á að þessi breytingartillaga á sér stoð í flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna frá árinu 1951 og svo er einnig sambærileg lagaákvæði að finna á öðrum Norðurlöndum.