154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

tillaga um breytingu á lögum um útlendinga.

[11:21]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég tel að hér sé ekki um að ræða breytingartillögu sem í rauninni sé skilyrt við það að einhver fremji hér einhver afglöp og það eigi að henda öllum úr landi, jafnvel fyrir hraðasektir eða eitthvað slíkt. Hér er verið að tala um alvarlega glæpi. Hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttir, sem er nú þingmaður Sjálfstæðisflokksins, skrifaði pistil og fyrirsögn hans er, ef ég man rétt: Heiðursglæpir eru ekki velkomnir. Þar er hún að vísa til skelfilegs máls sem er nú rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness, það alvarlegt mál að faðirinn sagði og lét hafa eftir sér í dómsal þegar hann var að bera vitni að ef þessi dóttir hans hefði verið í arabalandi væri búið að drepa hana. Svo einfalt var nú það. Við horfum upp á það að hér eru fangelsin okkar yfirfull (Forseti hringir.) jafnvel að meira leyti af einmitt útlendingum. Við erum að fara í að byggja ný fangelsi og hvaðeina bara til þess að reyna að anna þeirri eftirspurn. (Forseti hringir.) Ég ítreka: Það er auðvelt fyrir hæstv. forsætisráðherra að skoða breytingartillöguna því að hún byggir í rauninni ekki á neinu öðru en því sem hæstv. dómsmálaráðherra sagði í eldhúsdagsumræðunni í gær.