tillaga um breytingu á lögum um útlendinga.
Virðulegur forseti. Ég sé ekki mikinn efnislegan ágreining við hv. þingmann um þetta atriði. Ég ætla að nota tækifærið til að segja að ég held að það sé margt fleira sem við þurfum að gera. Við erum hér í dag með mál á dagskrá og ég vona að það mál fáist rætt hér og verði ekki tafið í umræðu út af einhverjum ágreiningi um þinglok. Þetta er mikilvægt mál sem margir hafa spáð að ríkisstjórnin væri ófær um að klára en það verður klárað með umræðu sem hefst í dag, 3. umræða um útlendingamálin, útlendingafrumvarpið. Við þurfum að gera fleira en það. Við þurfum að efla löggæsluna á landamærunum. Ég var nýlega í Keflavík, hjá lögreglustjóranum þar, að fá upplýsingar og heyra í starfsmönnum embættisins um það hvers konar verkefnum er verið að sinna þar. Við erum að brottvísa mun fleiri frá landamærunum en nokkru sinni fyrr og það hefur verið mjög vaxandi á undanförnum árum vegna þess að við erum að breyta verklagi. (Forseti hringir.) Við þurfum að vera meðvituð um alþjóðlega glæpastarfsemi sem herjar á landamærin okkar og styrkja lögregluna í þeim verkefnum.