154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

hvalveiðar á Íslandi.

[11:24]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Nú er aftur búið að leyfa veiðar á langreyði, í þetta sinn tímabundið fyrir veiðitímabilið á þessu ári. Ástæðan sem er gefin er að ráðherra hafi beinlínis borið skylda til þess burt séð frá eigin skoðunum. Annar ráðherra, formaður flokks matvælaráðherra, tjáði sig um málið og sagði: Leyfið til að veiða hval, með leyfi forseta, „má kannski segja að þetta sé bara eitt skref í þá átt“. — Hvaða átt? Að banna hvalveiðar á Íslandi. Það að leyfa hvalveiðar sé skref í þá átt að banna hvalveiðar á Íslandi. Álit umboðsmanns Alþingis var skýrt um ákvörðun fyrrverandi matvælaráðherra að banna hvalveiðar, að reglugerðin sem bannaði hvalveiðar átti ekki nægilega stoð í lögum en hann benti þó á að ekki væri útilokað að líta til sjónarmiða um velferð dýra og nefndi þar þau atriði sem ráðherra þarf að uppfylla. Allir núverandi ráðherrar VG koma hér að málum; fyrrverandi matvælaráðherra sem bannaði hvalveiðar, núverandi matvælaráðherra sem leyfði hvalveiðar og formaður VG sem segir að leyfið sé skref í áttina að því að banna hvalveiðar.

Ég vil því spyrja hæstv. matvælaráðherra: Hvert er næsta skrefið í því að banna hvalveiðar hjá þessari ríkisstjórn?