hvalveiðar á Íslandi.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég vil kannski byrja á því að leiðrétta þingmanninn. Forveri minn bannaði ekki hvalveiðar, hún frestaði upphafi veiðitímabilsins. Síðan var sett mjög skýr og ströng reglugerð sem gildir líka að þessu sinni. Ég vil bara halda því til haga að það er það sem þetta snýst um.
Að mati míns ráðuneytis snýst álit umboðsmanns einmitt um það hvernig eigi að túlka lög um hvalveiðar. Það var álitamál í fyrra og það er álitamál enn þá. Hann sló því líka föstu að svigrúm ráðherra væri afskaplega þröngt og að önnur sjónarmið um verndun og nýtingu hvalastofna hefðu lítið sem ekkert vægi. Það má því segja að hann hafi með öðrum orðum skrúfað allar skýrleikakröfur bókstaflega í botn. Það á í rauninni við um þessi mál eins og önnur.
Þessi ákvörðun mín byggist á því að ég fer eftir lögum um hvalveiðar eins og umboðsmaður segir í áliti sínu að ég verði að gera. Það er í rauninni ekki nema að breyttum lögum sem hægt er að synja um útgáfu leyfis. Við getum ekki gert það á grundvelli dýravelferðarsjónarmiðanna eingöngu. Svo er ekki. En það segir okkur kannski margt um að við þurfum að breyta þessum lögum og ég held að við eigum að gera það. Ég hef fengið undirtektir við það að það sé eitthvað sem við getum gert og ekki síst að færa þau nær þeim lögum sem nú hafa tekið gildi, enda eru þessi lög, eins og við vitum, gömul og bera sektarákvæði gullkróna eða fangelsis. Ég held því að okkur sé það öllum ljóst að þeim þarf að breyta og ég held að það sé eitthvað sem við ættum að gera.