hvalveiðar á Íslandi.
Forseti. Hæstv. matvælaráðherra segist hafa fengið hljómgrunn fyrir því að breyta lögum um hvalveiðar. Það er mjög áhugavert að heyra það. Er það kannski ástæðan fyrir því að leyfið er bara veitt tímabundið út þetta veiðitímabil? Megum við þá eiga von á því í haust að það komi þá breytingar á lögum um hvalveiðar sem eru þá einmitt kannski þetta biðskref í áttina að því að banna hvalveiðar? Er það staðan í dag að við munum horfa til þess á næsta þingi og fyrir veiðitímabilið á næsta ári að Alþingi fái að greiða atkvæði um það að banna hvalveiðar?