hvalveiðar á Íslandi.
Virðulegur forseti. Leyfið er tímabundið núna, eins og ég hef rökstutt m.a. með því að það er áframhaldandi vinna innan ráðuneytisins og það er starfshópur að störfum sem kemur til með að skila mér núna í haust eða í vetur, fyrir áramótin. Ég taldi ekki tilhlýðilegt að hafa leyfið lengra í ljósi þess að geta tekið afstöðu til þeirrar niðurstöðu sem þar kemur fram, hver svo sem hún verður. Mér fannst því ekki tilhlýðilegt að hafa leyfið lengra auk þess sem það hefði tæplega geti orðið lengra en bara fram á næsta ár sökum þess að ráðgjöf eða tillaga Hafrannsóknastofnunar nær í rauninni ekki nema fram á næsta ár þannig að í sjálfu sér helst það í hendur og hefðu ekki getað orðið lengra. Ég kaus að gera þetta þess vegna, af því að það er þessi vinna í gangi.