leyfi til hvalveiða.
Virðulegi forseti. Í sjálfu sér ráðlögðu þeir mér ekki að fara fram yfir þessi tvö ár sem undir eru sökum þess að veiðiráðgjöfin er þar til staðar. Þannig að ég hefði ekki getað farið í fimm eða tíu ár eða hvað það nú er. (Gripið fram í.) Það kemur tillaga. Það eru alltaf A- og B-leiðir sem ráðherra fær til sín. Það er ekki ein leið sem ráðherranum ber að fara eftir. Ég hef ekki séð það hjá mér í ráðuneytinu. Það eru alltaf valkostir sem ráðherrann tekur svo afstöðu til. Það gerði ég að þessu sinni og ég hef að mínu mati rökstutt nægjanlega vel hvers vegna ég fór þessa leið af því að ég tel að þessi hópur þurfi að skila ásamt — eins og ég segi erum við líka að vinna að ýmsum hugmyndum innan ráðuneytisins sem koma vonandi í ljós síðar þegar þessi hópur mun skila af sér og ég get tekið afstöðu til þess sem þar kemur fram.