154. löggjafarþing — 122. fundur, 13. júní 2024.
leyfi til hvalveiða.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra. Má skilja það sem svo að sérfræðingar ráðuneytisins hafi gert tillögu að því að leyfið yrði gefið út til eins árs?
Það er annað sem mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra um þó að tíminn sé stuttur. Í viðtali á Ríkisútvarpinu, eftir ríkisstjórnarfund síðastliðinn þriðjudag, sagði hæstv. ráðherra aðra ráðherra ekki hafa veitt sér þrýsting hvað málið varðar. Var það þannig að ráðherrar samstarfsflokka settu engan þrýsting á ráðherrann vegna málsins?