154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

leyfi til hvalveiða.

[11:32]
Horfa

matvælaráðherra (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Þeir beittu mig ekki þrýstingi og ég er þakklát fyrir það. Ég tel að það séu eðlileg vinnubrögð innan ríkisstjórnar að ráðherrar fái tækifæri og rými til að taka sínar ákvarðanir, hvort sem það snýr að hvalveiðum eða einhverju öðru slíku. Ég myndi ekki beita annan ráðherra þrýstingi vegna þess að mér fyndist eitthvað um eitthvert tiltekið mál sem væri til umfjöllunar. Svo svarið er nei.