154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

bréf ráðherra til lögreglu.

[11:33]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Forseti. Það voru áhugaverð orðaskiptin í ríkisstjórninni í gær og aldrei þessu vant voru ráðherrar þá að rífast um atriði sem einhverju máli skipta. Reyndar voru ráðherrar dagsins að takast á um algjör grundvallaratriði í öllum siðuðum samfélögum, um það hvort lögregla og ákæruvald geti sætt pólitískum afskiptum. Fyrst steig fram hæstv. dómsmálaráðherra í kjölfar bréfs fjármálaráðherra til lögreglunnar, bréfs þar sem fjármálaráðherra bendir lögreglu á starfsemi sem kunni að fara í bága við lög, vitneskja um stöðu mála sem lá að vísu alveg ljós fyrir, en í bréfinu minnir hann lögreglu á kæru sem lögregla hafi verið með til meðferðar og þar hafi tiltekin atriði ekki verið skoðuð nægilega að hans mati. Í fjölmiðlum í dag kemur reyndar fram að þessi rannsókn lögreglu standi yfir, samkvæmt Grími Grímssyni yfirlögregluþjóni, og afskiptin enn alvarlegri einmitt í því ljósi. Dómsmálaráðherra steig eðlilega opinberlega fram og sagði hið augljósa: Lögregla og ákæruvald geta aldrei lotið pólitískum afskiptum. Enginn ráðherra getur beint tilmælum til lögreglu um að hefja rannsókn, lögregla sér um það og ákæruvaldið og enginn annar. Þá komu viðbrögð fjármálaráðherra þar sem hann sagði það áhugavert að dómsmálaráðherra hefði brugðist við bréfasendingum hans til lögreglunnar og bætti um betur þegar hann sagði að það hefði verið athafnaleysi af hans hálfu hefði hann ekki skrifað lögreglunni.

Hér er um algjört grundvallaratriði að ræða og ég spyr: Tekur forsætisráðherra ekki örugglega undir með dómsmálaráðherra hvað hennar afstöðu varðar? Búum við nokkuð í landi þar sem ráðherrar telja það beinlínis skyldu sína að senda lögreglunni bréf eins og þessi og skipta sér af störfum hennar?