bréf ráðherra til lögreglu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svarið. Í mínum huga er þetta kennslubókardæmi um pólitísk afskipti af lögreglu. Afskipti ráðherrans er ekki hægt að skilja á neinn annan hátt en að ráðherra þyki tilefni til að lögregla hafi skoðun á ákveðnu máli, sem er reyndar til rannsóknar. Hvert gat markmiðið með bréfinu verið annað en að ýta við lögreglunni? Ráðherrann er mjög augljóslega rangstæður í þessu máli og ég vona að dómsmálaráðherra sé ekki eini ráðherrann sem stendur vörð um þessar grundvallarreglur og mér heyrist að forsætisráðherra ætli að taka undir með henni. Ráðherra getur ekki verið að senda hugleiðingu dagsins um hvern skuli rannsaka til lögreglu. Það gerir hann ekki. En þetta er ekki í fyrsta sinn sem á þetta reynir. Síðast voru það símhringingar þáverandi dómsmálaráðherra beint í lögreglustjóra á aðfangadag. Skyndilegur áhugi hafði þá kviknað í ríkisstjórninni á reglum um upplýsingagjöf lögreglu til fjölmiðla í kjölfar frétta um rannsókn lögreglu á ætluðum lögbrotum í Ásmundarsal. Lögreglustjóri fékk tvö símtöl frá dómsmálaráðherra á aðfangadag. (Forseti hringir.) Ríkisstjórnin verður að hætta þessum bréfasendingum og símtölum til lögreglu. Búum við ekki örugglega í réttarríki?