bréf ráðherra til lögreglu.
Virðulegi forseti. Það sem ég held að væri betra að verja tímanum í hér (Gripið fram í.) er hið undirliggjandi lagalega álitaefni sem er tilefnið fyrir þessum skoðanaskiptum öllum sem er það að hér hefur netverslun með áfengi vaxið umtalsvert að því er virðist. Það eru skilaboðin sem við fáum innan úr kerfinu. Reyndar er það athyglisverð staðreynd að netverslun virðist geta boðið áfengi á lægra verði en ÁTVR. Það er auðvitað athyglisverð staðreynd. Það hefur myndast ákveðið lagalegt tómarúm vegna þess að gömul lög tók ekki tillit til þess með hvaða hætti netverslun gæti rutt sér til rúms á þessum vettvangi. Af þessari ástæðu höfum við Sjálfstæðismenn talað fyrir því að það væri tímabært að koma með frumvarp, sem ekki hefur tekist samstaða um, (Forseti hringir.) til að skerpa línurnar um það hvernig menn ætli að ramma inn verslun sem færi fram í gegnum netið.