samskipti ráðherra við lögreglu.
Virðulegi forseti. Það er ekkert rosalega oft sem við ræðum um sjálfan grundvöll réttarríkisins hér í þessum þingsal en við erum þó að reyna að gera tilraun til þess hér vegna alvarlegra afskipta hæstv. fjármálaráðherra af lögreglurannsókn. Ég vil beina því til forseta að biðja hæstv. ráðherra að svara þeim fyrirspurnum sem hingað koma í óundirbúnum fyrirspurnatímum vegna þess að það getur ekki átt að vera undir hælinn lagt hvort afskiptin koma úr Framsóknarflokknum eða Sjálfstæðisflokknum. Hér er verið að spyrja um það hvort það sé í lagi að ráðherrar Sjálfstæðisflokksins hafi afskipti af rannsókn lögreglu með því að hringja í lögreglustjóra í tvígang í tengslum við Ásmundarsalarmálið. Þeirri spurningu er ekki svarað. Hæstv. ráðherra tekur hins vegar fullkomlega undir það að formaður Framsóknarflokksins og hæstv. fjármálaráðherra megi ekki senda bréf til lögreglu, hann eigi ekki að hafa afskipti af lögreglu. Ég vil beina því til forseta að koma því skýrt og ákveðið til ráðherra ríkisstjórnarinnar að svara þeim fyrirspurnum sem til þeirra koma í óundirbúnum fyrirspurnatíma.