samskipti ráðherra við lögreglu.
Ég vil taka undir með hv. þm. Sigmari Guðmundssyni. Spurning mín til hæstv. forsætisráðherra, verkstjóra ríkisstjórnarinnar, var einfaldlega sú: Búum við ekki örugglega í réttarríki? Búum við ekki örugglega við ríkisstjórn sem getur svarað því skýrt og skorinort að lögregla á ekki að búa við það að fá símtöl frá ráðherrum þegar mál eru til rannsóknar? Lögregla á ekki að búa við það að fá bréfasendingar frá ráðherrum með hugleiðingum um sakamálarannsókn dagsins. Þannig virkar þetta ekki. Og svar forsætisráðherra var hvað prísarnir hjá netsölunni væru helvíti fínir. Ég held að þeir séu góðir og ég ætla bara að segja að mér finnst það gott að prísarnir séu góðir, en við vorum að ræða réttarríkið.