154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

samskipti ráðherra við lögreglu.

[11:42]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Fundarliðurinn óundirbúinn fyrirspurnatími, þar sem þingheimurinn fær að nýta eitt af sínum helstu aðhaldstækjum gagnvart framkvæmdarvaldinu, er mjög mikilvægur. Það er mjög mikilvægt að ráðherrar taki fyrirspurnir þingmanna alvarlega, hversu fáránlegar sem þær kunna að hljóma í eyrum ráðherra. Það býr alltaf alvara þar á bak við og það ber að taka þeim alvarlega og svara af heiðarleika. Svör ráðherra eru oft mjög yfirborðskennd og vísa oft fyrirspurnum þingmanna bara hjá, þeir sleppa í rauninni við að svara spurningum. Mig langar bara rétt að brýna fyrir forseta að hann hjálpi okkur við að halda þessum sal dálítið heiðarlegum. Þetta er ekki flóknara en það. Það er skylda ráðherra og framkvæmdarvaldsins að vera heiðarleg, þau þurfa að vera heiðarleg gagnvart þingi og þjóð og forseti þingsins á að brýna fyrir fólki um slíkt.