samskipti ráðherra við lögreglu.
Forseti. Fyrirspurnatímar hér á þinginu eru einn mikilvægasti þátturinn í okkar störfum hér á þingi þar sem Alþingi hefur tækifæri til að inna ríkisstjórnina eftir svörum um það hvernig gangi að stýra landinu — eða ekki. Það er auðvitað algerlega ótækt að ráðherrar séu ekki að svara þeim spurningum sem að þeim er beint í þessum tímum. Þá er þetta auðvitað ekki til neins. Ég vil hins vegar líka vekja athygli á því sem ég held að hafi komið ágætlega fram hérna: Það er vanvirðing við Alþingi þegar svona er komið fram. Ég verð að játa að mér finnst kaldhæðnislegt að heyra þingmenn og ráðherra Sjálfstæðisflokksins koma hér upp í pontu og tala um að þeir séu svo mikið fyrir réttarríkið og vilji verja það, því það virðist fyrst og fremst eiga við þegar það hentar þeim.