154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

samskipti ráðherra við lögreglu.

[11:44]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Hér er verið að ræða skriflegar fyrirspurnir. Ég er með skriflega fyrirspurn frá því í febrúar sem ég hef ekki enn þá fengið svar við. Það er varðandi eftirlit dómsmálaráðherra. Í 19. gr. sakamálalaga segir:

„Ráðherra hefur eftirlit með framkvæmd ákæruvalds og getur krafist þess að ríkissaksóknari láti í té gögn og greinargerð um meðferð einstakra mála.“

Ég er búinn að bíða síðan í febrúar eftir að fá svar varðandi hvernig þessi heimild er notuð, vegna þess að þessi heimild virðist ekki vera notuð í tengslum við netsölu á áfengi. Vegna umræðu um netsölu á áfengi þá er netsala á áfengi smásala. Það vita allir. Símasala er líka smásala. Bændur hérna í gamla daga hringdu í ÁTVR, óskuðu eftir áfengi og sóttu það á pósthúsið. Það var smásala. Það skiptir engu máli hvort það er talað í gegnum síma, í gegnum netið eða yfir búðarborð. Þetta er smásala. Þetta er smásala og þetta er smásala. Í 10. gr. áfengislaga segir að ríkið hafi (Forseti hringir.) einkaleyfi til smásölu. Það virðist vera eins og við séum hér að tala um að netið hafi bara komið hérna í gær (Forseti hringir.) og við skiljum ekki hvað er í gangi. Þetta er 40 ára gamalt fyrirbæri, netsalan.