154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

samskipti ráðherra við lögreglu.

[11:46]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Virðulegur forseti. Ég átta mig alveg á því að það er ekki í verkahring forseta að gefa einhver bein fyrirmæli til ráðherra um það hvernig þeir svara fyrirspurnum. En þegar er verið að tala og beina fyrirspurnum til hæstv. ráðherra um grundvöll réttarríkisins, um að ekki eigi af hálfu ráðherra að hafa afskipti af lögreglu þegar lögregla er að skoða einhver mál, þá hlýtur að vera hægt að fara fram á það að svarað sé með einhverju öðru en almennum hugleiðingum um netsölu á áfengi. Málið nefnilega snýst ekkert um áfengi eða netsölu, þarna er um algjört grundvallaratriði að ræða sem á að ná yfir alla framkvæmd ráðherra, þ.e. þeir eiga ekki hafa afskipti af lögreglu þegar lögregla er að skoða einhver mál. Hér er hæstv. háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, sem er fyrrverandi dómsmálaráðherra. Það væri líka áhugavert að heyra sjónarmið þess ráðherra á því álitaefni sem núverandi hæstv. dómsmálaráðherra fór svo afskaplega vel yfir í bréfi í gær. Er eðlilegt að ráðherrar hafi afskipti af lögreglu (Forseti hringir.) þegar hún er að rannsaka mál? Er það bara óeðlilegt þegar Framsóknarflokkurinn gerir það (Forseti hringir.) en ekki óeðlilegt þegar Sjálfstæðisflokkurinn gerir það?