útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar fyrir nefndaráliti við 3. umræðu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga, nr. 80/2016. Líkt og fram hefur komið felur frumvarpið í sér breytingar á ákvæðum laga um útlendinga sem varða alþjóðlega vernd, mannúðarleyfi og dvalarleyfi vegna fjölskyldusameiningar. Breytingarnar miða fyrst og fremst að því að samræma lög um útlendinga við löggjöf í öðrum Evrópuríkjum, einkum annars staðar á Norðurlöndum.
Með frumvarpinu er m.a. lagt til að aðstandendur útlendinga sem fengið hafa viðbótarvernd eða dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða öðlist ekki rétt til fjölskyldusameiningar fyrr en a.m.k. tveimur árum liðnum, enda hafi viðkomandi fengið dvalarleyfi sitt endurnýjað.
Að lokinni 2. umræðu um málið í þingsal var málinu vísað til nefndar að nýju og var það gert að ósk Pírata. Óskaði nefndin eftir áliti umboðsmanns barna á breytingum frumvarpsins varðandi fjölskyldusameiningar. Í umsögnum umboðsmanns barna er fjallað um rétt barns til fjölskyldulífs og umönnunar foreldra skv. 7., 9. og 10. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins. Umboðsmaður barna bendir jafnframt á að barnaréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna hafi lagt áherslu á að aðildarríkjum barnasáttmálans beri að tryggja að umsóknir um fjölskyldusameiningu séu afgreiddar með jákvæðu hugarfari, á mannúðlegan og skjótan hátt og að sérstaklega beri að stuðla að sameiningu barna og foreldra. Umboðsmaður barna vísar einnig til 2. gr. barnasáttmálans, um að stjórnvöldum beri að virða og tryggja öllum börnum réttindi sem samningurinn kveður á um án mismununar af nokkru tagi.
Að mati umboðsmanns barna hafa þær breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu eðli málsins samkvæmt þær afleiðingar að tefja fyrir fjölskyldusameiningu og taki þar af leiðandi ekki með fullnægjandi hætti mið af réttindum barna skv. 2., 7., 9. og 10. gr. barnasáttmálans. Embætti umboðsmanns bendir á að takmarkanir og skilyrði fyrir fjölskyldusameiningu í málum þar sem börn eiga í hlut megi ekki vera með þeim hætti að girt sé fyrir að sjálfstætt og einstaklingsbundið mat sé lagt á umsóknir um fjölskyldusameiningu og að mat sé lagt á bestu hagsmuni barns. Það sé ekki fyllilega tryggt í frumvarpinu eins og það liggur fyrir að mati embættisins.
Meiri hlutinn áréttar, líkt og í áliti meiri hlutans við 2. umræðu, að ekki verði vikið frá þeim alþjóðlegu skuldbindingum sem Ísland hefur undirgengist og felast m.a. í barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem jafnframt hefur verið lögfestur hér á landi. Þegar sótt er um fjölskyldusameiningu þarf að leggja mat á aðstæður í hverju tilviki fyrir sig, enda er lagt til með frumvarpinu að heimilt verði að víkja frá kröfu um endurnýjun dvalarleyfis ef ríkar sanngirnisástæður mæla með því vegna aðkallandi umönnunarsjónarmiða eða ef viðkomandi uppfyllir nánar tilgreind skilyrði, m.a. varðandi þátttöku á vinnumarkaði og íslenskukunnáttu, og hefur til umráða íbúðarhúsnæði fyrir aðstandendur sem sótt er um fjölskyldusameiningarleyfi fyrir. Líkt og segir í greinargerð með frumvarpinu verður heimilt að beita undanþágu frá lögbundnu tímamarki, m.a. í tilfellum þar sem viðkomandi á barn í heimaríki sem er í bráðri hættu, er þar án annars forsjáraðila eða á við alvarleg veikindi að stríða. Hver og ein umsókn um fjölskyldusameiningu verður metin á einstaklingsbundnum grundvelli og því ekki um ófrávíkjanleg hlutlæg lagaskilyrði að ræða.
Meiri hlutinn áréttar jafnframt að skv. 10. gr. laga um útlendinga skal ákvörðun sem varðar barn tekin með hagsmuni þess að leiðarljósi, sbr. einnig 3. gr. barnasáttmálans, um að ávallt beri að leggja mat á það hvað er barni fyrir bestu við alla ákvarðanatöku eða ráðstafanir sem varða börn. Með vísan til þess er það mat nefndarinnar að það verði áfram skylt að leggja mat á hagsmuni barns hverju sinni.
Meiri hlutinn bendir jafnframt á að umræddar breytingar hafa ekki áhrif á gildandi rétt nánustu aðstandenda fylgdarlausra barna sem hljóta viðbótarvernd hér á landi til fjölskyldusameiningar.
Hvað gildissvið barnasáttmálans varðar þá er í minnisblaði dómsmálaráðuneytis, dagsettu 31. maí 2024, fjallað nánar um gildissvið tilgreindra ákvæða barnasáttmálans sem umboðsmaður barna bendir á að frumvarpið taki ekki með fullnægjandi hætti mið af. Ráðuneytið bendir á í tengslum við 7. gr. sáttmálans, um að barn eigi rétt á því að þekkja og njóta umönnunar foreldra sinna, að ljóst sé af lestri ákvæðisins í heild að það nái einkum til mikilvægis skráningar barna eftir fæðingu og „eftir því sem unnt er“ réttar barna til að þekkja foreldra sína og njóta umönnunar þeirra. Í framkvæmdarhandbók barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna um 7. gr. barnasáttmálans er einkum fjallað um hverjir geti talist foreldrar barns og við hvaða aðstæður. Varðandi 9. og 10. gr. barnasáttmálans þá bendir ráðuneytið á að í framkvæmdarhandbókinni komi fram að þegar ákvæði 9. og 10. gr. barnasáttmálans voru samin hafi formaður vinnuhópsins sem kom að því að semja drög að sáttmálanum lýst því yfir að skilningur vinnuhópsins væri sá að ákvæði 9. gr. væri ætlað að gilda um aðskilnað sem yrði við innlendar aðstæður en ákvæði 10 .gr. um aðskilnað á milli mismunandi landa og um fjölskyldusameiningarmál. Ákvæði 10. gr. væri ekki ætlað að hafa áhrif á almennan rétt ríkja til að koma á og stjórna innflytjendalöggjöf í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar.
Ráðuneytið tekur fram í minnisblaði sínu að það sé mat þess að 9. gr. barnasáttmálans sé einkum ætlað að ná til aðskilnaðar barna frá foreldrum sínum vegna innlendra atvika, t.d. þegar börn eru sett í umsjá barnaverndaryfirvalda, við afplánun foreldra í fangelsum og við brottvísun foreldris. Þá tryggi ákvæði 10. gr. barnasáttmálans ekki sem slíkt réttinn til fjölskyldusameiningar heldur sé það einhvers konar leiðbeiningarákvæði fyrir aðildarríki þegar til meðferðar eru umsóknir um fjölskyldusameiningar þar sem hagsmunir barna eru undir. Hið sama eigi við um önnur ákvæði sáttmálans, enda yrði fullveldisréttur ríkja hvað varðar mótun á innflytjendastefnu sinni að engu hafður ef synjun á hvers kyns fjölskyldusameiningu þar sem börn eiga hlut að máli yrði heimfærð undir ákvæði sáttmálans. Þá bendir ráðuneytið á að þótt ýmsir alþjóðasáttmálar leggi áherslu á mikilvægi fjölskyldulífs fyrir barn, þar á meðal barnasáttmálinn, þá myndi þeir ekki einstaklingsbundinn rétt til fjölskyldusameiningar.
Hvað varðar athugasemd umboðsmanns barna um að skilyrði fyrir fjölskyldusameiningu á borð við atvinnuþátttöku, framfærslugetu og húsnæði geti farið gegn jafnræðisreglu 2. gr. barna-sáttmálans og orðið til þess að börnum sé mismunað, bendir ráðuneytið á að tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins um rétt til fjölskyldusameiningar gildi innan Evrópusambandsins. Gildissvið hennar taki ekki til handhafa viðbótarverndar og mannúðarleyfa. Í löggjöf Evrópusambandsins sé því gerður greinarmunur á réttindum eftir eðli dvalarleyfis, þ.m.t. fjölskyldusameiningu. Hverju og einu aðildarríki sé veitt ákveðið svigrúm til að útfæra nánar reglur varðandi fjölskyldusameiningu í öðrum tilvikum en heyra undir tilskipunina að gættum alþjóðlegum skuldbindingum, þ.m.t. 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu.
Við umfjöllun um málið hefur nefndin fjallað um skilyrði til fjölskyldusameiningar annars staðar á Norðurlöndum. Ljóst er að reglur um fjölskyldusameiningar eru mismunandi á milli ríkja en til viðbótar við lögbundinn biðtíma er að finna mismunandi skilyrði fyrir veitingu fjölskyldusameiningar annars staðar á Norðurlöndum, t.d. um framfærsluskyldu og inngildingarkröfur. Við mat á því hvort ákvæði frumvarpsins samræmist réttindum barna samkvæmt barnasáttmálanum horfir meiri hlutinn jafnframt til þess hvernig regluverkið er annars staðar á Norðurlöndum, þar sem barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna hefur alls staðar verið fullgiltur, auk þess sem Noregur, Svíþjóð og Finnland hafa lögfest hann líkt og Ísland.
Í Noregi og Svíþjóð þurfa handhafar viðbótarverndar að uppfylla tiltekin grunnskilyrði sem eðli málsins samkvæmt geta falið í sér tiltekinn biðtíma fyrir fjölskyldusameiningu. Þau skilyrði lúta m.a. að því að handhafi viðbótarverndar geti framfleytt sér og fjölskyldu sinni, hafi yfir að ráða húsnæði fyrir fjölskyldu sína og hafi ekki þegið fjárhagsaðstoð á síðastliðnum 12 mánuðum áður en sótt er um fjölskyldusameiningu. Í Danmörku er tveggja ára lögbundinn biðtími til að öðlast rétt til fjölskyldusameiningar þegar viðkomandi er handhafi viðbótarverndar en einnig er að finna tilteknar undanþágur á því þegar rík umönnunarsjónarmið eru fyrir hendi.
Meiri hlutinn bendir á að það er m.a. markmið fyrirliggjandi frumvarps að færa löggjöfina hér á landi nær því sem tíðkast annars staðar á Norðurlöndum. Þrátt fyrir að ekki sé til staðar samræmt regluverk þá er horft til þess að ekki séu gerðar vægari kröfur hér á landi sem skapi sérstaka hvata til að sækja um alþjóðlega vernd umfram önnur lönd í Evrópu.
Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og þess sem hefur áður komið fram og er m.a. fjallað um í nefndaráliti meiri hlutans við 2. umræðu, telur meiri hlutinn að frumvarpið sé í samræmi við þær alþjóðlegu skuldbindingar sem Ísland hefur undirgengist.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
Undir nefndarálit meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Jódís Skúladóttir og Líneik Anna Sævarsdóttir.
Virðulegur forseti. Ég hef hér farið yfir nefndarálit meiri hlutans eftir að við tókum málið aftur til umfjöllunar milli 2. og 3. umræðu. Við áttum hér ágætt samtal um þetta mikilvæga mál við 2. umræðu og ég vil bara leggja áherslu á það að hér erum við með mikilvægt mál í höndunum. Þetta eru góðar breytingar á mikilvægri löggjöf sem útlendingalögin svo sannarlega eru. Þetta snýst fyrst og fremst um að færa okkur nær þeirri löggjöf sem þekkist í nágrannaríkjunum okkar á Norðurlöndunum. Það eru lönd sem við viljum bera okkur saman við. Það eru lönd sem búa við sambærilega velferð og sambærilegt laga- og regluverk og við þekkjum hér á Íslandi og því teljum við eðlilegt að þessi löggjöf taki líka mið af því sem þekkist á hinum Norðurlöndunum.
Virðulegur forseti. Ég vona að við getum afgreitt þetta mikilvæga frumvarp sem lög frá Alþingi nú alveg á allra næstu dögum.