útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir yfirferð sína og sömuleiðis samstarfið í hv. allsherjar- og menntamálanefnd. Ég ætla að fara inn á slóðir sem lúta að því sem við ræddum aðeins í 2. umræðu um málið um að það hafa vaknað upp spurningar varðandi stöðu Dyflinnarreglugerðarinnar eftir afnám 2. mgr. 36. gr. Nú er það svo að við höfum gengist undir ákveðnar skyldur til að taka svokölluð Dyflinnarmál til efnislegrar meðferðar, t.d. þegar annað hjóna hefur fengið vernd hér, líka þegar fylgdarlaus börn eru annars vegar. Mig langar til að spyrja hv. þingmann út í stöðu reglugerðarinnar eftir afnám 2. mgr. 36. gr. og hvaða heimildir íslensk stjórnvöld hafa til að taka mál til efnismeðferðar sem falla undir reglugerðina en ná ekki því alvarleikastigi sem „non-refoulement“-reglan gerir kröfu um skv. 42. gr. laganna. Ég held að það sé mikilvægt að við fáum þetta bara á hreint í ljósi þess að við í Samfylkingunni lögðum til (Forseti hringir.) ákveðna útfærslu sem er í anda norsku laganna og sem tekur þá til sérstakra tengsla. (Forseti hringir.) Það væri gott ef við myndum árétta þetta hérna saman í þingsal í dag.
(Forseti (ÁsF): Ég minni þingmann á að ræðutími er ein mínúta í báðum umferðum.)