útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið og tek undir þakkir um samstarfið á þessum vetri í allsherjar- og menntamálanefnd sem hefur verið mjög gott, bæði milli meiri og minni hluta.
Hv. þingmaður kemur hér inn á breytingartillögu sem Samfylkingin flutti við 2. umræðu og að mínu viti lýtur í rauninni að því að setja inn ákveðna þætti sem fyrir eru í Dyflinnarreglugerðinni. Við ítrekuðum við þá afgreiðslu að við fylgjum henni. Það kunna þar af leiðandi að koma upp mál sem verða tekin fyrir þrátt fyrir að viðkomandi hafi lagt inn umsókn hjá öðru Evrópuríki. Þá í rauninni bara fylgjum við Dyflinnarreglugerðinni hvað það varðar. Það hefur reyndar verið meiri umræða um það hvort við séum að vísa fólki brott til þeirra ríkja þar sem umsóknir liggja fyrir, sem sagt brottvísanir vegna Dyflinnarreglugerðarinnar. Þar höfum við …(Forseti hringir.) — Ég fer betur inn á það í næsta andsvari. Þetta var mjög hávær bjölluhringing, virðulegi forseti.
(ÁsF: Já, ég minni þingmenn á að ræðutíminn er ein mínúta og þeir verða að haga máli sínu samkvæmt því.)