útlendingar.
Virðulegur forseti. Eins og margoft hefur komið fram í umræðunni um þetta mál þá tel ég það vera til bóta. Ég tel að við séum hér að færa löggjöfina nær því sem þekkist í öðrum Evrópulöndum og þá einna helst Norðurlöndunum. En það er alveg rétt hjá hv. þingmanni að þetta er ekki nákvæmlega eins alls staðar. Stærsta breytingin í því frumvarpi sem við nú vonandi bráðum greiðum atkvæði um er niðurfelling 2. mgr. 36. gr. Það er langstærsta breytingin. Hún er líka í mínum huga mikilvægust og er algjörlega séríslensk regla. Ég held að hér sé um mjög góðar og mikilvægar breytingar að ræða en ég bara virði það að sjónarmiðin hér eru ólík. Ég og hv. þingmaður höfum alloft rætt bæði hér og í alls konar útvarpsþáttum og annars staðar um sýn okkar á þennan málaflokk og við erum ekki sammála. En ég tel að þessar breytingar séu ekki fallnar til þess að draga úr mannúð, heldur þvert á móti … (Forseti hringir.) — Ég kem inn á það í seinni ræðu.