útlendingar.
Forseti. Hv. þingmaður talar hér um mannúð. Ég minntist ekki á mannúð í því sem ég sagði. Það sem ég spurði út í var hvers vegna hv. þingmaður er á þeirri skoðun að við eigum að taka upp reglur sem hafa reynst illa fyrir kerfin. Nú hefur því verið haldið fram, var haldið fram áður alla vega, að við þyrftum að breyta lögum til að stytta málsmeðferðartíma, minnka álag á Útlendingastofnun, minnka kostnað í þessum málaflokki. Hér er verið að gera breytingar sem auka álag á Útlendingastofnun, þetta eykur kostnað, torveldar inngildingu. Mig langar til að ítreka spurninguna mína til hv. þingmanns: Hvers vegna erum við að taka upp reglur sem hafa reynst illa? Og nú erum við ekkert að tala um ólík sjónarmið og ólíkar skoðanir eða annað, þetta bara liggur fyrir. Það hefur reynst illa, það hefur verið slæm reynsla, það eru slæmar afleiðingar af því að stytta gildistíma dvalarleyfa, torvelda fjölskyldusameiningu. Ég er ekkert að tala um neina mannúð, við getum alveg lagt hana til hliðar og þetta frumvarp verður ekkert minna heimskulegt fyrir vikið. En mig langar til að ítreka spurningu mína til hv. þingmanns, og tökum 2. mgr. 36. gr. til hliðar: Fjölskyldusameiningar, stytting dvalarleyfa, af hverju erum við að taka upp reglur sem hafa reynst illa?