154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[12:16]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er ánægjulegt að heyra að hv. þingmaður telur að ákvæði barnasáttmálans nái yfir erlend börn líka. Það þýðir að öll ákvæðin heyra undir það, m.a. 10. gr. Mig langar að spyrja í seinna andsvari hv. þingmann hvort hún telji að umsóknir um fjölskyldusameiningu verði afgreiddar með jákvæðu hugarfari, á mannúðlegan hátt og skjótan hátt þegar kemur að sameiningu þessara barna eftir að þessi lög hafa verið samþykkt? Ef við komum hér aftur eftir eitt ár eða tvö ár og bendum á að það hafi ekki verið gert, er þá hv. þingmaður til í að breyta lögunum þannig að þau séu skjótvirk, jákvæð og mannúðleg?