útlendingar.
Virðulegi forseti. Já, ég treysti Útlendingastofnun til að afgreiða þær umsóknir sem hingað berast af mannúð og samkvæmt þeim lögum og reglum sem í landinu gilda. Það er mikilvægt fyrir kerfið okkar að það virki hratt og vel og fólk fái fljótt úrlausn sinna mála og fjölskyldusameiningar eru þar engin undantekning. Ég ítreka það sem ég sagði hér áðan, hér erum við að færa okkur nær því sem þekkist á hinum Norðurlöndunum. Það eru lönd sem alla jafna koma best út þegar kemur að velferð og vegsemd bæði barna og annarra sem í þessum ríkjum búa. Þess vegna finnst okkur eðlilegt að miða þessa löggjöf eins og svo margt annað við það sem þekkist á hinum Norðurlöndunum. Hér erum við bæði með ákveðin ákvæði, þ.e. tímamörk varðandi fjölskyldusameiningar þegar um viðbótarvernd er að ræða og dvalarleyfi af mannúðarástæðum, en við erum líka með ákveðnar undanþágur sem er þessi (Forseti hringir.) inngildingarkrafa, hvati til inngildingar í íslensku samfélagi.