útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir framsöguna og gott og skemmtilegt samstarf í allsherjar- og menntamálanefnd. Mér fannst þetta mjög áhugaverð framsaga og nefndarálit. Í nefndarálitinu kemur fram að að mati umboðsmanns taki breytingarnar ekki með fullnægjandi hætti mið af réttindum barna skv. 2., 7., 9. og 10. gr. barnasáttmálans. Svo virðist ekki vera neinn rökstuðningur þarna á bak við, það er bara talað almennt um að takmarkanir og skilyrði fyrir fjölskyldusameiningu í málum þar sem börn eiga í hlut megi ekki vera með þeim hætti að girt sé fyrir sjálfstætt og einstaklingsbundið mat og þetta sé ekki fyllilega tryggt í frumvarpinu. Var enginn rökstuðningur um það nákvæmlega hvernig þetta væri ekki fullnægjandi mat? Ég er sammála því að 10. gr. barnasáttmálans er leiðbeiningarákvæði. Það er líka mýgrútur af ákvæðum í lögum um útlendinga, t.d. í 31. gr., (Forseti hringir.) um hagsmunagæslu barns, ákvæði um réttaraðstoð o.fl.., ég taldi hátt í tíu greinar, sem taka til hagsmuna barns. (Forseti hringir.) Er þetta nægilega tryggt í lögunum, á stjórnsýslusviðinu, og hver eru rökin hjá umboðsmanni barna?
(Forseti (ÁsF): Ég minni þingmanninn á að hann hefur eina mínútu í andsvar.)