154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[12:21]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og ég er algerlega sammála. Mér finnst þetta ekki sterk rök hjá umboðsmanni barna hvað þetta varðar. Það eru engin rök sem koma fram, raunveruleg, um að það sé ekki fullnægjandi tillit tekið til réttinda barna samkvæmt sáttmálanum. Ég tek undir að það sé mikilvægt að svara þessu í nefndaráliti og ég tel að það sé ágætlega gert en vil jafnframt benda á að það er mýgrútur af ákvæðum eða mörg ákvæði í lögum um útlendinga sem taka tillit til barna, m.a. 31. gr., sem tekur til hagsmunagæslu barna, svo er 30. gr. um réttaraðstoð o.s.frv. Við erum vissulega að færa okkur nær Norðurlöndunum en varðandi fjölskyldusameiningar þá erum við ekki að ganga eins langt og Norðurlöndin. Öll Norðurlöndin hafa skilyrði eftir tvö ár, skilyrði um að viðkomandi sé með atvinnu eða fullnægjandi húsnæði. Ég get ekki annað séð en að við séum, eins og Norðurlöndin, að tryggja ákvæði barnasáttmálans hvað þetta varðar. (Forseti hringir.) Veit hún til þess að umræða hafi komið upp varðandi þetta á Norðurlöndunum, að fjölskyldusameiningar þar séu ekki í samræmi við barnasáttmálann?