154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[12:22]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Bryndís Haraldsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni og byrja á að svara síðustu spurningunni. Ég þekki það ekki hvort eða hvernig þessi umræða er á hinum Norðurlöndunum. En það er þannig í Danmörku að þeir eru með skilyrði um tveggja ára biðtíma plús ákveðnar inngildingarkröfur. Hin Norðurlöndin eru með svokallaðar inngildingarkröfur, þ.e. varðandi húsnæði, framfærslu, tungumálaþekkingu o.fl., það er aðeins mismunandi nálgun í því, en ekki með árafjöldann. Ég held þess vegna að við séum einmitt með betri tryggingu hér eftir breytingartillögu sem samþykkt var við 2. umræðu, þ.e. við erum með þessi tvö ár, en það er líka hægt að fá fjölskyldusameiningu mögulega fyrr, ef þú uppfyllir einmitt þessi inngildingarskilyrði. Það er eitt af því sem við ræddum við fulltrúa umboðsmanns barna, hvora leiðina væri í rauninni betri að fara. Þá kemur það í ljós og kemur ágætlega fram í minnisblaði umboðsmanns, að ef horft er á texta barnasáttmálans eins og þau túlka hann þá megi bara ekki vera með nein skilyrði, hvorki varðandi inngildingarkröfur né tíma. En það er einmitt það sem Norðurlöndin eru að gera (Forseti hringir.) sem jafnframt hafa fullgilt barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og mörg hver lögfest hann.