154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[12:24]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég tel það vera alvarlegt mál þegar hv. alþingismenn og formenn nefnda eru farnir að gera lítið úr áliti ráðgefandi stofnana og eftirlitsstofnana eins og umboðsmanna sem við hér á Alþingi höfum skipað. Við höfum séð þetta gerast áður þegar umboðsmaður Alþingis kom með greinargerð um það hvað hefði farið úrskeiðis við sölu á Íslandsbanka. Við sjáum það hér aftur núna þegar hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir gerir lítið úr áliti umboðsmanns barna, það sé frekar veikt og hér sé því ekki verið að fylgja þeim ráðum sem við höfum fengið. Þetta eru sérfræðingarnir í barnasáttmálanum. En nei, hv. nefndinni finnst ekki til mikils koma, að þau hafi eitthvert vit á þessum blessaða barnasáttmála sem þau og ráðuneytið viti nú miklu meira um.